Kvörtun vegna starfa yfirdýralæknis til yfirvalda
Ágætu
Forseti Íslands
Atvinnuvegaráðherra, æðsta stjórnvald velferðar dýra
Aðrir eftirlitsaðilar með íslenskri stjórnsýslu
Ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins
Umboðsmaður Alþingis
Ríkisendurskoðandi
Nefndarmenn Stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis
Inga Sæland ráðherra
Nafn mitt er Árni Stefán Árnason. Ég starfa sem dýraverndarlögfræðingur. Ég hef á undanförnum árum barist fyrir bættri dýravernd á Íslandi. Á meðal þess sem ég hef gagnrýnt harðlega eru starfshættir Matvælastofnunar og nær sú gagnrýni aftur til ársins 2012 - 2013 þegar frumvarp til laga um velferð dýra var flutt og síðar samþykkt af Alþingi. Ég gagnrýndi þá ákvörðun mjög og rökstuddi. Taldi það vera mikil mistök að færa framkvæmdavald laga um velferð dýra til stofnunarinnar og kom með aðrar tillögur. Ekkert var hlustað. Auk minnar gagnrýni hefur Ríkisendurskoðandi gefið stofnuninn falleinkunn með skýrslu sinni til Alþingis 2023. Niðurstaðan kemur heim og saman við það sem ég spáði rúmu áratug áður.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað staðfest að opinberir starfsmenn sem koma fram í embættiserindum þurfi almennt að þola ríkari gagnrýni en einkaaðilar sbr Saaristo o.fl. gegn Finnlandi og Skudayeva gegn Rússlandi. Þessi skrif mín lúta að gagnrýni á störf embættis yfirdýralæknis. Því starfi gegnir Þóra Jóhanna Jónasdóttur.
Erindi mitt til ykkar er í vissum skilningi neyðarkall. Ekki bara frá sjálfum mér sem þolanda hörku yfirdýralæknis undir merkjum Matvælastofnunar heldur veit ég að ég tala fyrir hönd mjög margra annara, m.a. skjólstæðinga minna sem hafa þurft að þola ofbeldi og valdníðslu Matvælastofnunar á ábyrgð Þóru. Ofbýður mér svo framganga hennar að ég skrifaði, eftir fyrstu vörslusviptinguna, sem beitt var á mig, en þær eru þrjár, greinina Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi MAST sbr. tengil hér að neðan. Í kjölfarið var fresti til úrbóta, af hálfu MAST breytt í vörslusviptingu allra dýra án rökstuðnings.
Svo hömlulausar eru allar vörslusviptingaraðgerðir MAST að ég skrifaði við þriðja mann greinina Er MAST á pari við Bakkakots/Kumbaravogs ofbeldið? Sjá tengil í heimildum.
Það vottar ekki fyrir nokkru meðalhófi, mikilvægustu reglu stjórnsýsluréttar hjá yfirdýralækni en í því felst að valda sem minnstum skaða til að ná lögmætu markmiði. Hinum lögmætu vörslusviptingarmarkmiðum hefur raunar aldrei verið lýst af MAST í neinu þeirra mála sem komið hafa á mitt borð á sl. mánuðum en þau eru 7, vörslusviptingar yfir 100 gæludýra. Í öllum tilvikum eru fjölskyldur skildar eftir í sárum og fá dýrin sín ekki til baka. Engin trygging er fyrir því að vörslusviptum dýrum líði betur, Þóra neitar að upplýsa hvert þeim var ráðstafað.
Alvarlegast af öllu er vörslusvipting verðmæts þýsks fjárhunds, Luger, í feb. sl. af fötluðum einstaklingi á heimili hans, hundar í skammtímavistun meðan móðir hins fatlaða var á næturvakt. Móðir hins fatlaði er Hulda Ragna Gestsdóttir.
Mast réðist, á ábyrgð yfirdýralæknis, inn í heimili hins fatlaða í lögreglufylgd með tilheyrandi þjáningu fyrir viðkomandi. Ekkert amaði að hundinum. Lagalegur rökstuðningur stenst ekki skoðun. - Mál sem yfirdýralæknir og starfsmenn á vettvangi hafa nú verið kærðir fyrir, ofbeldi á fötluðum einstaklingi sbr. viðhengi, sem læknir vottar hundinn honum mikilvægan enda keyptur sérstaklega í þágu hins fatlaða sem sýndi strax framfarir. Yfirdýrlæknir vísar allri viðleitni réttmæts eiganda, Huldu, til að endurheimta hund sinn á bug. Hulda er vandaður og agaður starfsmaður á heilbrigðissviði Reykjavíkurborgar, sem ber ábyrgð á velferð tuga íbúa á næturvöktum í þjónustuíbúðum borgarinnar. Yfirdýralæknir flýr af hólmi vísar erindinu til lögfræðings dýravelferðar Mast, Einars Ernis Thorlacius, sem áður hafði kallað Huldu ,,snældu vitlausa" í vitna viðurvist í símtali skv. Huldu sem vitni að samtali Einars og ræktanda hundsins. Klassískt dæmi um mál sem yfirdýralæknir hefur ekkert vald á.
Því er því sérstaklega beint til ráðherra, ef nokkur kostur er, að aflétta þessari ómannúðlegu vörslusviptingu og því er jafnframt sérstaklega beint til Ingu Sæland, mennta og barnamálaráðherra að beita sér í því líka.
Þá er vert að geta þeirra öfga þegar yfirdýralæknir var ábyrg fyrir að senda starfsmenn sína til bústaðar míns í Kjós til ná í eina dúfu, sem mér hafði láðst að taka heim til mín, hirti alla mín gullfiska í vörslusviptingunni 28. apríl ásamt nærri 100 öðrum dýrum. - Þetta er glórulaust háttalag og á ekkert skylt við vandaða stjórnsýslu og alls ekki velferð dýra.
.Ég hef á undanförnum vikum neyðst til að vera í stjórnsýslulegum samskiptum við yfirdýralækni vegna eigin máls og sex annara einstaklinga þolenda vörslusviptinga dýra samtals um 107 gæludýr.
Samtímis og áður á undanförnum árum hef ég átt í mjög jákvæðum málefnalegum samskiptum við margar íslenskar stofnanir með góðum árangri.
Samskipti við dýraeftirlit Matvælastofnunar á ábyrgð yfirdýralæknis, frá því hún var skipuð í embætti í okt. 2024 hafa reynst hrein þrautaganga, með öllu tilgangslaus í stjórnsýslulegum skilningi.
Hlutverk stjórnvalda á Íslandi skv. skráðum og óskráðum meginreglum íslensks stjórnsýsluréttar er að meðhöndla mál löglega, málefnalega, réttlátt og með virðingu fyrir réttindum borgaranna. Þetta er ekki sýnilegt í starfsháttum yfirdýralæknis
Það er því borgaraleg skylda mín og fh margra annara þolenda, það sem ég leyfi mér nú að skilgreina sem ofbeldi/valdníðslu yfirdýralæknis í vörslusviptingarmálum dýra, að vekja athygli opinberra eftirlitsaðila og annara sem ég tel málið varða á því sem hér fer á eftir, sérstaklega síðustu samskipti okkar hér að neðan og deilt er með ykkur.
Yfirdýralæknir segist starfa undir formerkjum framlínustarfa við dýravernd. Þá skilgreiningu má finna á heimasíðu Matvælastofnunar, mast.is. Í ,,framlínustörfum" sínum hefur yfirdýralæknir á undanförnum misserum ráðist á mannréttindi og dýravernd í meira mæli en þekkist í sögu íslenskrar dýraverndar í trássi við gildandi lög og rétt eins og rökstutt verður í þessum pósti til hennar. Ég get nefnt miklu fleiri dæmi um yfirgang og mitt mat á vanhæfi yfirdýralæknis, en leyfi mér að lokum að vitna í texta úr skýrslu Ríkisendurskoðanda til Alþingis árið 2023, árið áður en Þóra var skipuð í embætti. Eftir að Þóra var skipuð hefur staðan, traust almennings til hennar og Matvælastofnunar hrunið. Mikil andstaða við starfshætti hennar í ýmsum málum endurspeglast á samfélagsmiðlum. Hún og forstjóri MAST brúka stærstu fjölmiðla landsins til þess að lýsa því yfir að starfsmönnum MAST stafi hætta vegna órökstuddra ógnana þeirra sem eru ósammála starfsháttum hennar.
Meðferð yfirdýralæknis á valdheimildum er langt umfram allt meðalhóf í öllum málum, sem ég þekki.
Þóra Jóhanna hefur samtals vörslusvipt mig dýrum þrisvar á sl. fjórum mánuðum.
Svo ofboðin var mér fyrsta vörslusviptingin að ég sendi forstjóra MAST tafarlaust kvörtunarbréf (sjá viðhengi) vegna framkomu þeirra þriggja dýralækna sem stóðu að fyrstu sviptingunni, Örnu Ólafsdóttur, Agnesar Helgu Martin og Daníels Guðlaugssonar, allt dýralæknar. Þau sviptu mig fjórum heilbrigðum ungum hundum sem ekkert amaði að. Matvælastofnun uppfyllti auk þess ekki skilyrði þess vörslusviptingarákvæðis sem stofnunin beitti á mig og verður rökstutt síðar. Ég tel að það sem Þóra er að gera sé algjörlega farið úr böndunum
Niðurstaðan er skýr þegar horft er á myndbönd í tenglum hér að neðan, yfirdýralæknir hefur orðið sér að atlægi og til algerrar skammar. Setja má spurningarmerki við hvort hún sé hæf til að gegna embætti sínu og mætti atvinnuvegaráðherra íhuga þá spurningu.
Ég á von á því að Þóra muni nú veitast að mér, beint til ykkar, vegna þessara skrifa til að vernda hagsmuni sína en mikið er húfi fyrir hana enda munu henni og öðrum starfsmönnum dýravelferðar MAST njóta þess furðulega forgangs skv. skipulagningu ráðuneytisins að verða boðið starf hjá Stofnun atvinnuveganna áður en öðrum verður , ef að verður, boðið að sækja um starf. Brýnt að hlutaðeigandi aðilar kynni sér skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2023 um MAST af því tilefni.
Þó það sé aukatriði þá réðist yfirdýralæknir á mína hagsmuni, sem varlega áætlað eru tugi milljón króna virði. Svipti mig fjórum hreinræktuðum hundum í hæsta gæðaflokki, innfluttum frá Þýskalandi og Englandi og ætlaðir voru sem gæludýr, hluti fjölskyldu minnar, til ræktunar og sem sýningardýr. Að halda því fram að ég sinni svo miklum verðmætum illa og fari illa með dýr mín er fásinna. Umræddir hundar fengu klst göngutúra í lausahlaupum alla daga nema í verstu veðrum. Keyptur var bíll undir þá sem kostaði á þriðja tug milljóna, húsnæðið Ölduslóð 38, áður dánarbú móður minnar var í endurgerð upp á jafn háa upphæð, samtals 230 fermetrar, með tvennum risasvölum, sem hundarnir höfðu alltaf greiðan aðgang að. Stórhætta er á því í dag að yfirdýralæknir hafi unnið skemmdarverk á hundunum á þeim þremur mánuðum sem þeim hefur verið sundrað og teknir frá fjölskyldu minni í góðu yfirlæti..
Vegna algers samvinnuskorts af hálfu yfirdýralæknis, þrátt fyrir ítrekaðar sáttatilraunir, er mér því nauðugur sá kostur einn til að endurheimta það sem í raun var mér allt, að fara í dómsmál, innsetningarbeiðni. Auk þess er annað mál fyrir Landsrétt og málið að hluta á forræði atvinnuvegaráðuneytisins. Samt hefur yfirdýralæknir ráðstafað sakarefninu sem hlýtur að teljast einsdæmi í íslenskri stjórnsýslu.
Úr skýrslu Ríkisendurskoðanda um ástand mála hjá MAST
,,Niðurstöður úr könnunum um Stofnun ársins og könnunum Gallup benda til þess að stofnunin glími við margvíslegar áskoranir í mannauðsmálum.
,,Alvarlegt er hve mikið vantraust ríkir í garð Matvælastofnunar, bæði meðal fagfólks og almennings.
,Stofnunin þarf að ráðast í raunverulegar umbætur til að bæta ímynd sína
,,Heildareinkunnin vegna innri samskipta var 3,58 en fyrir ímynd stofnunar var gefin einkunnin 2,19 og hefur sú einkunn ekki verið lægri.
Heimildir
Í tenglum aftast í þessum pósti er að finna staðfestingar á raunverulegri meðferð minni á dýrum mínum, sem afmá allar fullyrðingar yfirdýralæknis um illa meðferð mína á dýrum. Þá má sjá safn ljósmynda, sem staðfesta góða umhirðu þeirra og hreysti.
Ég bind vonir við inngrip þeirra sem þessum pósti er deilt með og læt þessum inngangi lokið. Ég deili með ykkur því sem ég vona að verði síðustu samskipti mín og yfirdýralæknis, svar við því þegar hún hafnar endurupptöku máls míns, án raka, sakar mig um vanhirðu hunda minna og illa meðferð, upplýsir mig um að hún hafi ráðstafað mjög verðmætum hreinræktuðum innfluttum hundum mínum til annara aðila án þess að hafa nokkrar lagaheimildir til og verður rökstutt í svari mínu.
-----//-----
Sæl Þóra
Eins og þér er kunnugt um þá ákvað MAST að vörslusvipta mig öllum dýrum sem var framkvæmt 28. apríl sl. og varð mér gífurlegt áfall.
Sviptingin var framkvæmd vegna slæms aðbúnaðar á heimili mín Ölduslóð 38, þó ég hefði tilkynnt eftirlitsdýralæknum að ég byggi í dánarbúi móður minnar heitinnar Maríu Albertsdóttur.
Ölduslóð 38 hefur nú verið tekin í gegn af verktökum og verður vottað af HES innan skamms. Ég á líka annað heimili í Kjós, Eyrar 10 hvar ég dvel mikið og myndbönd sýna að hundum mínum leið vel.
Hvað þarf ég að gera meira til að endurheimta amk Atla, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter, Agnesi? Ég veitti þeim allt það sem þau þráðu, sem var hreyfing, matur, vatn og ást og kærleikur, nýtt heimili og bifreið til að tryggja að þau kæmust í Seldal alla daga. Ég fjárfesti fyrir 50. millj. til að tryggja að framangreindum hundum liði sem best og Sigríður Inga Sigurjónsdóttir getur vottað heilsufar þeirra allra við sviptingu og mig sem hundeiganda til 40 ára með hreint sakarvottorð.
Ég vil ekki fara í hart, en það eru margar leiðir færar í þeim efnum og ég mun nýta mér þær þó ég þurfi að eyða miklu miklu miklu meiri tíma í það en að reyna að ná sáttum við við þig.
Ég er með þrjá ketti hérna heima og ég keypti mér 10 vikna schaffer tík til að fylla upp í skarðið á hundlausu heimili. Ég er líka komin en 5 ný fiskabúr, með gullfiskum, gúppy fiskum og síklíðum þó allar gullfiskarnir mínir, sem ekkert amaði að hafi verið teknir af mér 28. apríl sl.
Ég vona að þú finnir flöt á að finna mínu máli farveg og þessum djöfulgangi sem kemur mest niður á mínum dýrum og þú hefur í umráðum þínum megi linna. - Þú veist að ég er grjótharður framsækinn dýraverndarsinni sem dettur ekki í hug að fara illa með dýr. Dýr eru mér barnlausum einhleypum manninum allt !!!
Sæll Árni Stefán
Til hamingju með að Ölduslóð hefur verið tekin í gegn, það hlýtur að vera léttir. Hins vegar er það svo samkvæmt gögnum að vörslusvipting á dýrum þínum byggði ekki eingöngu á slæmum aðbúnaði sem þú vísar til sé að komast í betra horf, heldur einnig vanhirðu og illrar meðferðar á dýrum. Stofnunin hefur fengið heilsufarsvottorð bæði frá nefndum dýralækni og fleiri dýralæknum á nokkur dýranna sem staðfesta vanhirðu. Jafnframt fleiri ábendingar, myndbönd og vitni sem greina frá illri meðferð. Framangreint hefur allt áður komið fram í svörum til þín vegna beiðni um endurupptöku með ítarlegri tilvísan í eftirlitsskýrslur.
Hvað varðar endurheimt á dýrum þínum þá hefur því erindi einnig áður verið svarað í pósti frá sviðsstjóra eftirlits þann 25.6. Ég get endurtekið það helsta ef það hefur farið fram hjá þér. Þar sem ekki var lagt fram tryggingafé fyrir dýr þín eftir vörslusviptingu, þrátt fyrir framlengdan frest, hefur þeim nú verið varanlega ráðstafað samkvæmt skyldum Matvælastofnunar um ráðstöfun á vörslusviptum dýrum sem fram koma í 37. gr laga um velferð dýra. Með varanlegri ráðstöfun afsalar Matvælastofnun sér umráðum yfir dýrunum og getur með engum hætti hlutast til um að taka þau dýr aftur og afhenda þér, óháð hvort úrbætur hafi nú verið gerðar eða ekki. Það gildir líka hundana Atla, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter, Agnesi.
Takk fyrir að upplýsa um dýrahald þitt, við kunnum að meta hreinskilni þína. Stofnuninni bárust reyndar fljótt ábendingar um að þú værir umráðamaður dýra á nýjan leik. Stofnunin sér ekki að svo stöddu ástæður til að hafa afskipti af því dýrahaldi á meðan aðbúnaður þeirra, umhirða og meðferð þín á dýrunum brýtur ekki á þeim samkvæmt ákvæðum laga og velferðarreglugerða. Stofnunin sér hins vegar ástæður til að fá að fylgjast vel með dýrahaldi þínu í ljósi sögunnar. Vona að þú sýnir samstarfsvilja hvað það varðar, svo ekki þurfi að leita til meira íþyngjandi úrræða. Enda hefur Matvælastofnun lögbundna skyldu og heimild til að sinna nauðsynlegu eftirliti samkvæmt lögum nr. 55/2013 um velferð dýra. Verði eftirliti ekki sinnt með samþykki aðila getur stofnunin, eftir atvikum, gripið til viðeigandi úrræða á grundvelli laganna til að tryggja framkvæmd þess.
Ég hef skilning á því að dýr eru þér mikils virði. Mig langar því til að hvetja þig til að leggja þig fram við að huga vel að aðbúnaði, umhirðu og meðferð á dýrunum þínum, þannig að ekki þurfi að koma til frekari afskipta stofnunarinnar af dýrahaldi þínu.
Ágætu
Forseti Íslands
Atvinnuvegaráðherra, æðsta stjórnvald velferðar dýra
Aðrir eftirlitsaðilar með íslenskri stjórnsýslu
Ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins
Umboðsmaður Alþingis
Ríkisendurskoðandi
Nefndarmenn Stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis
Inga Sæland ráðherra
Nafn mitt er Árni Stefán Árnason. Ég starfa sem dýraverndarlögfræðingur. Ég hef á undanförnum árum barist fyrir bættri dýravernd á Íslandi. Á meðal þess sem ég hef gagnrýnt harðlega eru starfshættir Matvælastofnunar og nær sú gagnrýni aftur til ársins 2012 - 2013 þegar frumvarp til laga um velferð dýra var flutt og síðar samþykkt af Alþingi. Ég gagnrýndi þá ákvörðun mjög og rökstuddi. Taldi það vera mikil mistök að færa framkvæmdavald laga um velferð dýra til stofnunarinnar og kom með aðrar tillögur. Ekkert var hlustað. Auk minnar gagnrýni hefur Ríkisendurskoðandi gefið stofnuninn falleinkunn með skýrslu sinni til Alþingis 2023. Niðurstaðan kemur heim og saman við það sem ég spáði rúmu áratug áður.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað staðfest að opinberir starfsmenn sem koma fram í embættiserindum þurfi almennt að þola ríkari gagnrýni en einkaaðilar sbr Saaristo o.fl. gegn Finnlandi og Skudayeva gegn Rússlandi. Þessi skrif mín lúta að gagnrýni á störf embættis yfirdýralæknis. Því starfi gegnir Þóra Jóhanna Jónasdóttur.
Erindi mitt til ykkar er í vissum skilningi neyðarkall. Ekki bara frá sjálfum mér sem þolanda hörku yfirdýralæknis undir merkjum Matvælastofnunar heldur veit ég að ég tala fyrir hönd mjög margra annara, m.a. skjólstæðinga minna sem hafa þurft að þola ofbeldi og valdníðslu Matvælastofnunar á ábyrgð Þóru. Ofbýður mér svo framganga hennar að ég skrifaði, eftir fyrstu vörslusviptinguna, sem beitt var á mig, en þær eru þrjár, greinina Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi MAST sbr. tengil hér að neðan. Í kjölfarið var fresti til úrbóta, af hálfu MAST breytt í vörslusviptingu allra dýra án rökstuðnings.
Svo hömlulausar eru allar vörslusviptingaraðgerðir MAST að ég skrifaði við þriðja mann greinina Er MAST á pari við Bakkakots/Kumbaravogs ofbeldið? Sjá tengil í heimildum.
Það vottar ekki fyrir nokkru meðalhófi, mikilvægustu reglu stjórnsýsluréttar hjá yfirdýralækni en í því felst að valda sem minnstum skaða til að ná lögmætu markmiði. Hinum lögmætu vörslusviptingarmarkmiðum hefur raunar aldrei verið lýst af MAST í neinu þeirra mála sem komið hafa á mitt borð á sl. mánuðum en þau eru 7, vörslusviptingar yfir 100 gæludýra. Í öllum tilvikum eru fjölskyldur skildar eftir í sárum og fá dýrin sín ekki til baka. Engin trygging er fyrir því að vörslusviptum dýrum líði betur, Þóra neitar að upplýsa hvert þeim var ráðstafað.
Alvarlegast af öllu er vörslusvipting verðmæts þýsks fjárhunds, Luger, í feb. sl. af fötluðum einstaklingi á heimili hans, hundar í skammtímavistun meðan móðir hins fatlaða var á næturvakt. Móðir hins fatlaði er Hulda Ragna Gestsdóttir.
Mast réðist, á ábyrgð yfirdýralæknis, inn í heimili hins fatlaða í lögreglufylgd með tilheyrandi þjáningu fyrir viðkomandi. Ekkert amaði að hundinum. Lagalegur rökstuðningur stenst ekki skoðun. - Mál sem yfirdýralæknir og starfsmenn á vettvangi hafa nú verið kærðir fyrir, ofbeldi á fötluðum einstaklingi sbr. viðhengi, sem læknir vottar hundinn honum mikilvægan enda keyptur sérstaklega í þágu hins fatlaða sem sýndi strax framfarir. Yfirdýrlæknir vísar allri viðleitni réttmæts eiganda, Huldu, til að endurheimta hund sinn á bug. Hulda er vandaður og agaður starfsmaður á heilbrigðissviði Reykjavíkurborgar, sem ber ábyrgð á velferð tuga íbúa á næturvöktum í þjónustuíbúðum borgarinnar. Yfirdýralæknir flýr af hólmi vísar erindinu til lögfræðings dýravelferðar Mast, Einars Ernis Thorlacius, sem áður hafði kallað Huldu ,,snældu vitlausa" í vitna viðurvist í símtali skv. Huldu sem vitni að samtali Einars og ræktanda hundsins. Klassískt dæmi um mál sem yfirdýralæknir hefur ekkert vald á.
Því er því sérstaklega beint til ráðherra, ef nokkur kostur er, að aflétta þessari ómannúðlegu vörslusviptingu og því er jafnframt sérstaklega beint til Ingu Sæland, mennta og barnamálaráðherra að beita sér í því líka.
Þá er vert að geta þeirra öfga þegar yfirdýralæknir var ábyrg fyrir að senda starfsmenn sína til bústaðar míns í Kjós til ná í eina dúfu, sem mér hafði láðst að taka heim til mín, hirti alla mín gullfiska í vörslusviptingunni 28. apríl ásamt nærri 100 öðrum dýrum. - Þetta er glórulaust háttalag og á ekkert skylt við vandaða stjórnsýslu og alls ekki velferð dýra.
.Ég hef á undanförnum vikum neyðst til að vera í stjórnsýslulegum samskiptum við yfirdýralækni vegna eigin máls og sex annara einstaklinga þolenda vörslusviptinga dýra samtals um 107 gæludýr.
Samtímis og áður á undanförnum árum hef ég átt í mjög jákvæðum málefnalegum samskiptum við margar íslenskar stofnanir með góðum árangri.
Samskipti við dýraeftirlit Matvælastofnunar á ábyrgð yfirdýralæknis, frá því hún var skipuð í embætti í okt. 2024 hafa reynst hrein þrautaganga, með öllu tilgangslaus í stjórnsýslulegum skilningi.
Hlutverk stjórnvalda á Íslandi skv. skráðum og óskráðum meginreglum íslensks stjórnsýsluréttar er að meðhöndla mál löglega, málefnalega, réttlátt og með virðingu fyrir réttindum borgaranna. Þetta er ekki sýnilegt í starfsháttum yfirdýralæknis
Það er því borgaraleg skylda mín og fh margra annara þolenda, það sem ég leyfi mér nú að skilgreina sem ofbeldi/valdníðslu yfirdýralæknis í vörslusviptingarmálum dýra, að vekja athygli opinberra eftirlitsaðila og annara sem ég tel málið varða á því sem hér fer á eftir, sérstaklega síðustu samskipti okkar hér að neðan og deilt er með ykkur.
Yfirdýralæknir segist starfa undir formerkjum framlínustarfa við dýravernd. Þá skilgreiningu má finna á heimasíðu Matvælastofnunar, mast.is. Í ,,framlínustörfum" sínum hefur yfirdýralæknir á undanförnum misserum ráðist á mannréttindi og dýravernd í meira mæli en þekkist í sögu íslenskrar dýraverndar í trássi við gildandi lög og rétt eins og rökstutt verður í þessum pósti til hennar. Ég get nefnt miklu fleiri dæmi um yfirgang og mitt mat á vanhæfi yfirdýralæknis, en leyfi mér að lokum að vitna í texta úr skýrslu Ríkisendurskoðanda til Alþingis árið 2023, árið áður en Þóra var skipuð í embætti. Eftir að Þóra var skipuð hefur staðan, traust almennings til hennar og Matvælastofnunar hrunið. Mikil andstaða við starfshætti hennar í ýmsum málum endurspeglast á samfélagsmiðlum. Hún og forstjóri MAST brúka stærstu fjölmiðla landsins til þess að lýsa því yfir að starfsmönnum MAST stafi hætta vegna órökstuddra ógnana þeirra sem eru ósammála starfsháttum hennar.
Meðferð yfirdýralæknis á valdheimildum er langt umfram allt meðalhóf í öllum málum, sem ég þekki.
Þóra Jóhanna hefur samtals vörslusvipt mig dýrum þrisvar á sl. fjórum mánuðum.
Svo ofboðin var mér fyrsta vörslusviptingin að ég sendi forstjóra MAST tafarlaust kvörtunarbréf (sjá viðhengi) vegna framkomu þeirra þriggja dýralækna sem stóðu að fyrstu sviptingunni, Örnu Ólafsdóttur, Agnesar Helgu Martin og Daníels Guðlaugssonar, allt dýralæknar. Þau sviptu mig fjórum heilbrigðum ungum hundum sem ekkert amaði að. Matvælastofnun uppfyllti auk þess ekki skilyrði þess vörslusviptingarákvæðis sem stofnunin beitti á mig og verður rökstutt síðar. Ég tel að það sem Þóra er að gera sé algjörlega farið úr böndunum
Niðurstaðan er skýr þegar horft er á myndbönd í tenglum hér að neðan, yfirdýralæknir hefur orðið sér að atlægi og til algerrar skammar. Setja má spurningarmerki við hvort hún sé hæf til að gegna embætti sínu og mætti atvinnuvegaráðherra íhuga þá spurningu.
Ég á von á því að Þóra muni nú veitast að mér, beint til ykkar, vegna þessara skrifa til að vernda hagsmuni sína en mikið er húfi fyrir hana enda munu henni og öðrum starfsmönnum dýravelferðar MAST njóta þess furðulega forgangs skv. skipulagningu ráðuneytisins að verða boðið starf hjá Stofnun atvinnuveganna áður en öðrum verður , ef að verður, boðið að sækja um starf. Brýnt að hlutaðeigandi aðilar kynni sér skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 2023 um MAST af því tilefni.
Þó það sé aukatriði þá réðist yfirdýralæknir á mína hagsmuni, sem varlega áætlað eru tugi milljón króna virði. Svipti mig fjórum hreinræktuðum hundum í hæsta gæðaflokki, innfluttum frá Þýskalandi og Englandi og ætlaðir voru sem gæludýr, hluti fjölskyldu minnar, til ræktunar og sem sýningardýr. Að halda því fram að ég sinni svo miklum verðmætum illa og fari illa með dýr mín er fásinna. Umræddir hundar fengu klst göngutúra í lausahlaupum alla daga nema í verstu veðrum. Keyptur var bíll undir þá sem kostaði á þriðja tug milljóna, húsnæðið Ölduslóð 38, áður dánarbú móður minnar var í endurgerð upp á jafn háa upphæð, samtals 230 fermetrar, með tvennum risasvölum, sem hundarnir höfðu alltaf greiðan aðgang að. Stórhætta er á því í dag að yfirdýralæknir hafi unnið skemmdarverk á hundunum á þeim þremur mánuðum sem þeim hefur verið sundrað og teknir frá fjölskyldu minni í góðu yfirlæti..
Vegna algers samvinnuskorts af hálfu yfirdýralæknis, þrátt fyrir ítrekaðar sáttatilraunir, er mér því nauðugur sá kostur einn til að endurheimta það sem í raun var mér allt, að fara í dómsmál, innsetningarbeiðni. Auk þess er annað mál fyrir Landsrétt og málið að hluta á forræði atvinnuvegaráðuneytisins. Samt hefur yfirdýralæknir ráðstafað sakarefninu sem hlýtur að teljast einsdæmi í íslenskri stjórnsýslu.
Úr skýrslu Ríkisendurskoðanda um ástand mála hjá MAST
,,Niðurstöður úr könnunum um Stofnun ársins og könnunum Gallup benda til þess að stofnunin glími við margvíslegar áskoranir í mannauðsmálum.
,,Alvarlegt er hve mikið vantraust ríkir í garð Matvælastofnunar, bæði meðal fagfólks og almennings.
,,Stofnunin þarf að ráðast í raunverulegar umbætur til að bæta ímynd sína
,,Heildareinkunnin vegna innri samskipta var 3,58 en fyrir ímynd stofnunar var gefin einkunnin 2,19 og hefur sú einkunn ekki verið lægri.
Heimildir
Í tenglum aftast í þessum pósti er að finna staðfestingar á raunverulegri meðferð minni á dýrum mínum, sem afmá allar fullyrðingar yfirdýralæknis um illa meðferð mína á dýrum. Þá má sjá safn ljósmynda, sem staðfesta góða umhirðu þeirra og hreysti.
Ég bind vonir við inngrip þeirra sem þessum pósti er deilt með og læt þessum inngangi lokið. Ég deili með ykkur því sem ég vona að verði síðustu samskipti mín og yfirdýralæknis, svar við því þegar hún hafnar endurupptöku máls míns, án raka, sakar mig um vanhirðu hunda minna og illa meðferð, upplýsir mig um að hún hafi ráðstafað mjög verðmætum hreinræktuðum innfluttum hundum mínum til annara aðila án þess að hafa nokkrar lagaheimildir til og verður rökstutt í svari mínu.
Sæl Þóra Jóhanna!
Að mínu mati er handvömm í stjórnsýslu þinni þess eðlis og alvarleika að nauðsynlegt er að bregðast við svari þínu. Ég tel að hæðnisfull, yfirlætisleg og ruddaleg viðbrögð þín við réttmætri viðleitni minni, að lögum, til að endurheimta hunda mína, sérstaklega þeirra vegna, hafi verið ómálefnaleg og ekki í samræmi við þær kröfur sem gera verður til vandaðrar stjórnsýslu.
Opnað var á möguleika á endurupptöku, sem ég á að lögum rétt á, af hálfu MAST í maí sl. skv. gögnum málsins enda skilyrði af minni hálfu uppfyllt að mínu mati. Þá óskaði stofnunin sjálf eftir rökstuðningi mínum fyrir slíkri endurupptöku. Í millitíðinni hefur þú gengið á bak orða þinna. Það er óheiðarleg stjórnsýsla. Stofnunin ber ekki virðingu fyrir þeirri óskráðu meginreglu stjórnsýsluréttar að sambærileg mál skulu fá sambærilega málsmeðferð.
Tilgangur erindis þessa er jafnframt að upplýsa æðri stjórnvöld og eftirlitsaðila um málsmeðferð máls míns, sem ég tel að hafi ekki verið í samræmi við lög, góða stjórnsýsluhætti og réttindi þeirra sem eiga hagsmuna að gæta í stjórnsýslumálum.
Þess vegna ávarpaði ég þau í inngangi þessa tölvupósts og sendi þeim gögn sem varpa ljósi á málstað minn.
Eins og þér er kunnugt er ég menntaður lögfræðingur með háskólagráðu í réttarheimspeki, á annan áratug að baki sem starfandi lögfræðingur. Ég geri mér því fulla grein fyrir þeim lagalegu álitaefnum sem uppi eru í máli þessu en þú virðist ítrekað ósammála. Það er erfiður slagur í lögfræði.
Ég skil reyndar ekki hvert þú sækir lögfræðilegan þankagang þinn. Það getur ekki verið til Einars Ernis Thorlacius og Viktors Pálssonar, lögfræðinga, því ég tel þá vita eða amk eiga að vita betur en það sem kemur fram í erindi þínu. Þar á ég sérstaklega við þá stjórnvaldsákvörðun þína að ráðstafa stjórnarskrárvörðum eignaréttindum mínum á mörgum tuga heilbrigðra dýra til aðila úti í bæ án samráðs við mig. Þér var það skylt að lögum sbr. 3. ml. 1.mgr. 37. gr. laga um velferð dýra. Ákvörðun þín um meðferð vörslusviptingarmálsins var því í trássi við það ákvæði eins og ég kem að síðar. Margar ákvarðanir þínar í mínu máli og málum skjólstæðinga minna hafa reyndar verið þannig, í trássi við lög eins og ég tel að síðar muni koma í ljós þegar kærumál verða til lykta leidd fyrir atvinnuvegaráðuneytinu, sem mun taka mánuði ef ekki ár vegna seinagangs.
Ég geri mér jafnframt grein fyrir því að ágreiningur okkar er að nokkru leyti ójafn. Ég set fram lagalega gagnrýni á stjórnsýsluhætti þína þótt þú hafir ekki lögfræðimenntun og hlýtur því að hafa takmarkaðan skilning á slíkri gagnrýni. Það breytir þó ekki þeirri skyldu minni að gæta hagsmuna minna og dýra minna og halda fram þeim lagalegu og málefnalegum sjónarmiðum sem ég tel eiga við í máli þessu til að endurheimta stjórnarskrárvarið lausafé mitt.. - Það mun ég gera alla dómstólaleiðina ef þér tekst ekki að jafna ágreining okkar, með því að skila mér amk þeim sex verðmætu hundum, til að byrja með, sem um ræðir. Allar forsendur vörslusviptinga eru löngu brostnar, hafi þær í öndverðu verið fyrir hendi. Það á reyndar við í öllum málum sem komið hafa á borð mitt.
Ójafnræðið felst einnig í eðli málsins. Þú kemur fram fyrir hönd ríkisvalds, ég sem borgari, sem MAST skilgreinir sem því furðulega heiti ,,viðskiptavinur" Við erum að lögum gerðaþolar.
Borgurum ber almennt að hlíta ákvörðunum stjórnvalda þar til þær hafa verið felldar úr gildi eða þeim hnekkt af dómstólum. Af þeirri ástæðu hvíla sérstaklega ríkar kröfur á stjórnvöldum um að ákvarðanir þeirra séu byggðar á lögum og að málsmeðferð sé lögmæt, málefnaleg, óhlutdræg og í samræmi við meðalhófsregluna. Jafnframt ber stjórnvöldum að virða og vernda réttindi borgaranna á öllum stigum stjórnsýslunnar. Þar sem stjórnvöld fara með opinbert vald gagnvart einstaklingum er traust og vönduð stjórnsýsla ekki aðeins æskileg heldur grundvallarforsenda réttarríkisins.
Að mínu mati bera skrif þín, því miður, með sér að þú hafir ekki gert þér nægilega grein fyrir þeim skyldum sem hvíla á stjórnvöldum þegar þau fara með opinbert vald gagnvart borgurum.
Af þeirri ástæðu tel ég nauðsynlegt að gera alvarlegar athugasemdir við þá málsmeðferð sem viðhöfð hefur verið og leita þeirra réttarúrræða sem lög mæla fyrir um til að fá lögmæti hennar endurskoðað.
Ég mun svara bréfi þínu lið fyrir lið. Það hefur að geyma fjölmargar rangfærslur, órökstuddar sakargiftir og rógburð. Jafnframt tel ég að efni bréfs þíns beri með sér verulegan misskilning á efni og beitingu laga nr. 33/1944, laga nr. 37/1993, laga nr. 55/2013 og reglugerðar nr. 80/2016, en framkvæmd hinna tveggja síðastnefndu réttarheimilda hefur verið falin því stjórnvaldi sem þú starfar fyrir. Það er hægt að fallast á að það sé eðlilegt, þú ert ekki lögfræðingur en það er óeðlilegt ef þú þiggur ráðgjöf frá lögfræðingum Matvælastofnunar.
Ég mun svara hverri skrástrikuðu málsgrein, sem eru fjórar, í pósti þínum, lið fyrir lið
1.Til hamingju með að Ölduslóð hefur verið tekin í gegn, það hlýtur að vera léttir. Hins vegar er það svo samkvæmt gögnum að vörslusvipting á dýrum þínum byggði ekki eingöngu á slæmum aðbúnaði sem þú vísar til sé að komast í betra horf, heldur einnig vanhirðu og illrar meðferðar á dýrum. Stofnunin hefur fengið heilsufarsvottorð bæði frá nefndum dýralækni og fleiri dýralæknum á nokkur dýranna sem staðfesta vanhirðu. Jafnframt fleiri ábendingar, myndbönd og vitni sem greina frá illri meðferð. Framangreint hefur allt áður komið fram í svörum til þín vegna beiðni um endurupptöku með ítarlegri tilvísan í eftirlitsskýrslur.
1.1 samkvæmt gögnum
Þau gögn sem þú vísar til eru eftirlitsskýrslur dýralækna stofnunarinnar. Þær bera allar með sér mikla samtryggingu og eru þvert á öll vottorð dýralæknis míns, eins reynslumesta dýralæknis á Íslandi. Allar skýrslurnar voru ritaðar eftir að ég hafði gagnrýnt þrjá dýralækna opinberlega í greinarskrifum og nafngreint þá.
Nánast umsvifalaust eftir þá birtingu varð veruleg breyting á viðbrögðum þínum. Í stað þess að beita þeirri málsmeðferð sem áður hafði verið viðhöfð, þar sem veittur var frestur til úrbóta og fram kom rauðum stöfum í eftirlitsskýrslum, var gripið til þeirrar ákvörðunar að svipta mig vörslu allra dýra.
Þessi tímaröð atvika er að mínu mati mikilvæg við mat á sönnunargildi framangreindra skýrslna og þeim forsendum sem þær byggja á. Ég tel að þegar málavextir verða lagðir fyrir dómstóla í réttri tímaröð verði þessar aðstæður teknar til ítarlegrar skoðunar við mat á gildi gagnanna og lögmæti þeirrar málsmeðferðar þinnar, sem viðhöfð var.
1.2 vanhirðu
Þóra Jóhanna Jónasdóttir. Vanhirtu dýrin mín, sem þú kallar svo, eru nú hundarnir níu sem þú ert nú ábyrg fyrir að hafa tekið úr umhverfi og aðstæðum sem þeir voru lífsglaðir og heilbrigðir í. Hundana vanhagaði um ekkert og þurftu næstum aldrei aðstoð dýralæknis vegna annmarka á heilbrigði. Fjöldi vitna getur staðfest það.
Kettirnir mínir eru líka, þeir vanhirtu, sem þú skilgreinir sem svo, í vanhirðu á þína ábyrgð. Það sama gildir um dúfurnar sem höfðu allt veðrahvolfið til að flögra um í, nóg af mat og vatni og öruggt skjól fyrir öllum veðrum. Á meðal vanhirtu dýra minna, sem þú skilgreinir svo, er líka fuglapar af tegundinni Ara chloropterus (Green winged macaw) sem ég bjargaði gegnum greiðslu hárrar peningaupphæðar og komust loksins í þær aðstæður sem parið átti skilið eftir áratuga hremmingar við mjög slæman kost stundum, stundum myrkur dögum saman. Útistía, sérstaklega smíðuð fyrir það par til að vera í á sólríkum sumardögum, stendur tóm, vegna vanhirðu þinna.
Ég get talið svona endalaust áfram. Niðurstaðan er einföld. Það ert þú sem ert hirðulaus um velferð dýra minna, ekki ég.
Ég mótmæli öllu sem kemur fram um vanhirðu mína og vísa til þess að í máli mínu hefur þér aldrei tekist að sýna fram á að ég brjóti gegn 1. gr. laga um velferð dýra. Öll mín dýr höfðu allt til alls, þau vanhagaði ekki um neitt. Um það mun vitna fjöldi manna á næstunni.
Þú kýst að taka mark á skýrslum eftirlitsdýralæknum, sem skálda alls kyns hluti um mig og mín dýr, eftir að ég gat nafna þeirra í víðlesinni grein, Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi MAST - nutiminn.is - Ekkert mark hefur verið tekið á andmælum mínum á skýrslurnar og slíkum andmælum svarað með skætingi af lögfræðing dýravelferðarsviðs, Einari Erni Thorlacius.
Ég mótmæli í umræddum skýrslum og dreg þekkingu dýralæknanna sem rituðu þær verulega í efa og geng lengra, ég tel þá ekki uppfylla skilyrði 10. gr. laga um velferð dýra um þekkingu, ábyrgð og hæfni. Öllum dýrum mínum leið vel við sviptingu. Eftir er fullviss um, að þeim fór að líða illa og líður ennþá illa. Ég fullyrði að það er ekki nokkur hundaeigandi sem gerir sér far um þá umhirðu sem ég hef tileinkað mér í hundahaldi í áratugi. Með því hef ég fylgst með hjá öðrum. Reyndar er það jafnframt svo að einn fremsti hundaskóli landsins, Betri hundar, sá ástæða til að lofa mig fyrir agaða en lífsglaða hunda þegar ég mætti tugum hunda skólans í þjálfun í Seldal fyrir nokkru.
Mér dettur ekki hug og hef enga ánægju af að láta dýrum líða illa vegna vanhirðu, ólíkt þér og ég kem að síðar. Það er alvarlega hugsanavilla hjá þér og staðfestir getuleysi þitt sem áhugakonu um velferð dýra og líklega hreina illgirni þína í minn garð, þar sem þú sætir nú rannsókn vegna kæru minnar fh Huldu R. Gestsdóttur, vegna ofbeldis við fatlaðan einstakling við sviptingu 13. feb. sl. í Rvk. og vegna meintra hegningarlagabrota við vörslusviptingar. Að baki viðbrögðum þínum virðist búa hefndarhugur.
Um framangreint eru allir stuðningsmenn mínir sammála. Við vörslusviptingu sex hunda í Kjós, hvert ég var eltur af þínu fólki í lögreglufylgd 28. apríl sl., lúbarinn andlega skv. þínum fyrirmælum, átti ég gott samtal við lögreglumenn og sýndu þeir, svo ekki varð um villst, að háttalag þitt og þíns fólks var þeim ekki þóknanlegt.
Þú ræður ekki við gagnrýnann málefnalegan fræðimann eins og mig heldur víkur þér undan með rökleysu og útúrsnúningum. Þú kýst að beita bellibrögðum til að þagga niður í einstaklingum eins og mér, svo ekki sé minnst á Huldu R. Gestsdóttur. Það mun þér ekki takast.
1.3 illrar meðferðar á dýrum.
Þú sakar mig um illa meðferð dýra. Það er mjög alvarleg ásökun og ég mótmæli henni enda sneiðir þú framhjá því að rökstyðja mína meintu illu meðferð. Það er af því þú getur það ekki. Þú ert og verður ófær um að beita refsiákvæðum 45. gr. laga um velferð dýra og gætu átt við á mig ef orði þín væru sönn, sem þau eru ekki.
Ég hlýt að spyrja, fyrst þú telur mig dýraníðing hinn mesta: af hverju kærir þú mig ekki fyrir illa meðferð dýra? Þú þarft ekki að svara því, ég get svarað því. Sönnunarbyrðir yrði þér ofaukin.
Engu að síður og af því þú sakar mig um illa meðferð dýra skora ég á þig að kæra mig fyrir slíka meðferð dýra.
Mér væri það mikið hjartans mál að fá úr því skorið af dómsvaldinu hver réttarstaða mín er. Hvort dómari teldi að ég ætti að sæta refsiábyrgð fyrir brot á lögum um velferð dýra.
Skylda þín er því mikil að íhuga að kæra mig, jafnmikil og þú taldir hana ranglega vera, að vörslusvipta mig dýrum mínum! Gakktu alla leið alls staðar Þóra ekki bara þar sem það hentar þér. Farðu að lögum!
En hvað er eiginlega ill meðferð dýra Þóra Jóhanna? Ill meðferð dýra er t.d. hlutdeild og tómlæti þeirra sem geta komið í veg fyrir níð á blóðmerum, loðdýrum, grísum og hvölum til að nefna eitthvað. Kannast þú við að hafa komið nálægt slíku Þóra Jóhanna? Nagar samviska þín þig eitthvað að vita af þessum dýrum þjást þegar þú getur komið í veg fyrir það?
Norðlenskt sveitarfélag hefur nú tekið þá ákvörðun að banna loðdýraeldi sökum dýraníðs. Hvar er þitt framlag í þeim efnum?
Ég hef lagt tugi milljóna í gegnum árin að tryggja velferð minna dýra og fjölda annara dýra. Ég tryggi mín dýr til að tryggja þeim örugga læknisþjónustu, ég býð þeim upp á fyrsta flokks aðbúnað. Mínum dýrum sinnir einn reynslumesti dýralæknir landsins. Hundar mínir fengu klst hreyfingu á dag í frjálsu hlaupi. Þeir komu á fyrsta kalla allir til mín með dinglandi rófu, þeir fengu fyrsta flokks mat. Þeim leið öllum mjög vel þangað til þú sundraðir þeim hóp þvert á meginreglur laga um velferð dýra. Það er ótrúlegt háttalag og fyrir mér blasir mikil illgirni af þinni hálfu sem stuðningsmenn minir hafa kennt við siðblindu. Ekkert í málflutningi þínum stenst nokkra skoðun um illa meðferð mína á dýrum mínum.
Netið er yfirfullt af efni um eftirbreytnaverða góða meðferð mína á öllum dýrum mínum og ég er mjög stoltur af. Ég stunda framlínustörf í dýrahaldi, stunda frumkvæðisvinnu í dýravernd og hef alltaf gert! Ég er upphafsmaður Dalsmynnismálsins, blóðmeramálsins, Brúneggjamálsins, máli hreindýrstarfa sem flæktu sig í girðingarnet austur á landi og dóu margir hægum dauðdaga svo fátt eitt sé talið. MAST réði ekkert við þau mál fyrr en seint og síðar mér.
- Hvað varðar endurheimt á dýrum þínum þá hefur því erindi einnig áður verið svarað í pósti frá sviðsstjóra eftirlits þann 25.6. Ég get endurtekið það helsta ef það hefur farið fram hjá þér. Þar sem ekki var lagt fram tryggingafé fyrir dýr þín eftir vörslusviptingu, þrátt fyrir framlengdan frest, hefur þeim nú verið varanlega ráðstafað samkvæmt skyldum Matvælastofnunar um ráðstöfun á vörslusviptum dýrum sem fram koma í 37. gr laga um velferð dýra. Með varanlegri ráðstöfun afsalar Matvælastofnun sér umráðum yfir dýrunum og getur með engum hætti hlutast til um að taka þau dýr aftur og afhenda þér, óháð hvort úrbætur hafi nú verið gerðar eða ekki. Það gildir líka hundana Atla, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter, Agnesi.
2.1 Þar sem ekki var lagt fram tryggingafé
Þetta eru útúrsnúningar eins og flest annað. Hið rétta er að framlagning tryggingarfjár var samþykkt. Ákvörðun þín um upphæð tryggingarfjár, þótti mér og ráðgjöfum mínum svo fjarstæðukennd að hún var þegar í stað kærð til atvinnuvegaráðuneytisins 13. maí sl. Ákvörðunin var stjórnsýsluákvörðun og þar með er sá hluti málsins á forræði ráðuneytisins og allar frekar ákvarðanir sem lúta að beitingu 37. gr. úr höndum þínum.
Aukinheldur uppfylltir þú ekki lagaskilyrði 37. gr sbr. hér að neðan.
Geta þín við beitingu 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra er áhyggjuefni fyrir íslenska dýravernd og æðri stjórnvöld. Geta þín til beytingar 38. gr. er ennþá meira áhyggjuefni.
Við skulum því fara yfir 1. mgr. 37. gr. laga um velferð dýra, sem þú brúkar til réttlætingar á vörslusviptingu dýra minna. Máske dregur þú einhvern lærdóm af því.
,,Matvælastofnun er heimilt að taka ákvörðun um að svipta umráðamann dýra vörslu þeirra, ef aðilar sinna ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests, og sér Matvælastofnun um framkvæmd vörslusviptingar en er jafnframt heimilt að leita aðstoðar lögreglu. Við vörslusviptingu skal Matvælastofnun ákveða hvort dýrin skuli flutt burt eða þeim haldið þar sem þau eru. Matvælastofnun er heimilt að láta aflífa dýr sem stofnunin hefur umráð yfir vegna vörslusviptingar að liðnum tveimur sólarhringum takist hvorki stofnuninni né eiganda að finna viðeigandi aðstæður eða aðbúnað fyrir dýr. Matvælastofnun telst vera umráðamaður dýra á meðan vörslusvipting stendur yfir og er skylt að annast um þau og sjá um brottflutning á dýrum sem tekin hafa verið úr vörslu umráðamanns, auk þess sem hún ber ábyrgð á fóðrun, umhirðu og aðbúnaði dýranna, allt á kostnað umráðamanns. Matvælastofnun tekur ákvörðun um hvort aflétta skuli vörslusviptingu dýra eða ráðstafa þeim með öðrum hætti að virtum andmælarétti aðila máls þar sem honum skal gefinn kostur á að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin uns dómur fellur, sbr. 41. gr. Matvælastofnun skal ráðstafa dýrunum og getur látið bjóða dýr upp, selt þau til lífs eða slátrunar eða látið aflífa þau sé ekki unnt að ráðstafa þeim á annan hátt".
Ákvæðið er mjög gott. Ákvæðið er svo skýrt að orðskýring er vel tæk, engin lögskýringargögn fylgja ákvæðinu í greinargerð.
2.1.1 Innan tilgreinds frests
Þegar bifreiðareigandi fer með bifreið sína í árlega skoðun og fær endurskoðun þarf hann að koma með bifreiðina innan tilgreinds frests. Þegar dýraeigandi þarf að lúta eftirliti þínu og starfsmenn þínir gera athugasemdir þá á dýraeigandi að vera gert að framkvæma úrbætur innan tilgreinds frests skv. 1. mgr. 37. gr.
Hér færð þú falleinkunn, býrð til þínar eigin reglu sem hljóðar svo: frestur til úrbóta án tilgreiningar á tímamörkum. Þessi heimatilbúni frestur til úrbóta stenst enga skoðun. Það gerir eftirlitsskýrslur marklausar. Þær eru því að formi til ólöglegar. Eigi að veita frest skal hann skilgreindur í tíma svo ,,viðskiptavinur" get skipulagt sig og fullnægt kröfum þínum. Að gefa ótilgreindan tíma til úrbóta á heilu dánarbúi og þurfa að lúta því að skráð frávik skráist síðar alvarleg frávík og getur leitt til vörslusviptinga, er ekki boðleg stjórnsýsla og hvergi er að finna heimild fyrir þessu í lögum.
Þannig fékk ég frest til úrbóta á heilu dánarbúi í tæplega 30 daga, hvar dýrin voru þó við ágætan kost á þriðju hæð Ölduslóðar 38 og vanhagaði um ekkert sbr. 1. gr. laga um velferð dýra. Útilokað var fyrir dýrin, þ.m.t gullfiskanna, að komast á aðra hæð, miðhæð, sem var illa farin eftir bruna í eldhúsi og var í óreiðu vegna endurbóta. Samt tekur MAST aðra hæð í heildarmengið. Það er mjög óheiðarlegt.
Starfsmenn þínir fóru á jarðhæð hvaðan ég var ný fluttur í jan. Þar blasti við þeim fyrsta flokks, hrein nýtískuleg íbúð hvar ég hafði búið á meðan foreldrar mínir voru á lífi. Sú íbúð hefði verið, ef andúð eftirlitsdýralæknanna hefði ekki verið svon mikil, góður vitnisburður um hvernig ég held heimili. Þetta útskýrði ég fyrir eftirlitsdýralæknum. Ekki kom til greina af þeirra hálfu að taka það inn í þetta mengi. Því blasir það við að frá upphafi hafi verið ætlunin að sverta ímynd mína í eftirlitsskýrslum.
2.1.2 né eiganda
Þesssi hluti 37. gr. var líka brotinn. Ekkert samráð var haft við mig. 23. apríl lágu fyrir sex afsöl þeirra hunda sem ég var vörslusviptur 5 dögum seinna. Staðfest var af dómara í úrskurði hans að ég væri réttmætur skráður eigandi hundanna. Mér hefur, af þér, verið keyrt ókleift að efna afsalsskyldur mínar að kauparétti. Það er enn eitt lögbrotið af þinni hálfu.
2.1.3 og er skylt að annast um þau og sjá um brottflutning á dýrum sem tekin hafa verið úr vörslu umráðamanns, auk þess sem hún ber ábyrgð á fóðrun, umhirðu og aðbúnaði dýranna, allt á kostnað umráðamanns
Hér koma gildandi skyldur þínar fram. Það er í dag, þremur mánuðum eftir sviptingu, skylda þín að lögum að tryggja framangreint á meðan tryggingarfjárhæð sætir úrskurði ráðuneytisins og sakarefnið er á forræði Landsréttar. Allar aðrar vangaveldur um varanlega ráðstöfun og frávísun á ábyrgð þinni, eru markleysa.
2.1.4 að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin
Hér skal, með ánægju, endurtekið að tryggingarupphæð er til úrskurðar hjá ráðuneytinu um réttmæti þeirrar stjórnvaldsákvörðunar sem við á. Á meðan hefur þú ríkar skyldur um umönnun allra dýra minn.
2.1.5 uns dómur fellur,
Þangað til mál þetta hefur endanlega verið útkljáð fyrir dómstólum bendi ég aftur á lið 2.1.4 sbr. 1.mgr. 37. gr.
2.1.6 sé ekki unnt að ráðstafa þeim á annan hátt
Fyrir lá 23. apríl sl. að unnt var að ráðstafa sex hundum skv. afsölum þess efnis. Þú hefur kosið að virða ekki þá réttarstöðu mína um skyldur seljanda og rétt kaupenda
2.2 verið varanlega ráðstafað samkvæmt skyldum Matvælastofnunar um ráðstöfun á vörslusviptum dýrum sem fram koma í 37. gr laga um velferð dýra
Enn og aftur fellur þú á prófinu Þóra Jóhanna. Það er afsakanlegt í ljósi skorts á lögfræðimenntun þinni en í ákvæðinu stendur líka ,,sé ekki unnt að ráðstafa þeim á annan hátt. Þessir starfshættir þínir eru farnir að minna mig á starfshætti Einars Ernis Thorlacius, lögfræðings dýravelferðarsviðs MAST, sem hopar á milli ákvæða og týnir úr þeim það sem hentar honum og hafnar að greina meginniðurstöður lagaákvæða.
Ég ítreka fyrri umfjöllun um skyldur þínar að annast dýrin mín enda hefur þú aldrei haft neinar heimildir til ráðstöfunar dýranna. Óþarfi er að endurtaka þá umfjöllun
En til að dýpka alvarleikann í handvömm þinni varðandi þennan lið 2.2 er rétt að benda þér á eignarréttarákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Ísland.
,,Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir"
Í þessu ákvæði sem er framar í réttaheimildastiganum en lög um velferð dýra er hnykkt á. Það óþarfi að lögskýra það frekar.
Ákvæði laga um velferð dýra geta aldrei gengið framar skýrum fyrirmælum eignarréttarákvæði stjórnarskrá lýðveldisins og alls ekki þegar beiting þín á 37. gr. uppfyllti ekki skilyrði ákvæðisins, heldur var týnt úr því það sem þér þótti henta best og hagsmunir mínir að engu hafðir. Það er ekki góð lögfræði Þóra Jóhanna.
Sótt verður hart í innsetningarbeiðni að þér verði gert að upplýsa um staðsetningu þessara dýra. Ef málarekstur minn gengur eftir mun það valda enn einum harmleik hjá þeim sem þú hefur ólöglega ráðstafa dýrum mínum til.
Rétt er líka að ítreka að þú hefur valdið mér tugmilljón króna fjárhagslegu tjóni með háttalagi þínu fallir þú ekki frá ólögmætri vörslusviptingu þinni, með því að skerða fjárhagslega hagsmuni mína og er þá ekki meðtalinn sá miski sem þú hefur valdið mér. Þær miskabætur mun ég sækja í einkaréttarlegri dómkröfu vegna kæru sem þegar er fram komin í þinn garð og/eða í einkarefsimáli gegn þér.
2.3 og getur með engum hætti hlutast til um að taka þau dýr aftur og afhenda þér
Jú þú getur hlutast til þess og ég skora raunar á þig að gera það, frekari rökstuðningur er óþarfur, þetta hefur allt verið útskýrt áður í þessu bréfi
2.4 óháð hvort úrbætur hafi nú verið gerðar eða ekki
Sannarlega getur þú, einmitt vegna úrbóta afturkallað vörslusviptingar, til þess er heimild í 37. gr. Það gengur ekki að lögum að bjóða viðskiptavini upp á, í upphafi máls, að veita frest til úrbóta án þess að tilgreina tímalengd, mæta svo aftur á Ölduslóð nokkrum dögum seinna og lýsa því yfir að það sem voru áður frávik séu nú alvarleg frávik sem síðar leiddi til vörslusviptingar af því að gagnrýnin grein var skrifuð í millitíðinni. Þetta er ekki lögfræði Þóra Jóhanna, það er ekki málefnaleg stjórnsýsla, þetta er hentugleikafræði og fyrir hana er ekkert rúm í réttarríki!
- Takk fyrir að upplýsa um dýrahald þitt, við kunnum að meta hreinskilni þína. Stofnuninni bárust reyndar fljótt ábendingar um að þú værir umráðamaður dýra á nýjan leik. Stofnunin sér ekki að svo stöddu ástæður til að hafa afskipti af því dýrahaldi á meðan aðbúnaður þeirra, umhirða og meðferð þín á dýrunum brýtur ekki á þeim samkvæmt ákvæðum laga og velferðarreglugerða. Stofnunin sér hins vegar ástæður til að fá að fylgjast vel með dýrahaldi þínu í ljósi sögunnar. Vona að þú sýnir samstarfsvilja hvað það varðar, svo ekki þurfi að leita til meira íþyngjandi úrræða. Enda hefur Matvælastofnun lögbundna skyldu og heimild til að sinna nauðsynlegu eftirliti samkvæmt lögum nr. 55/2013 um velferð dýra. Verði eftirliti ekki sinnt með samþykki aðila getur stofnunin, eftir atvikum, gripið til viðeigandi úrræða á grundvelli laganna til að tryggja framkvæmd þess.
3.1 við kunnum að meta hreinskilni þína
Ég lít ekki svo á að þú kunnir að meta hreinskilni. Um það hef ég ekki meira að segja.
3.2 Stofnuninni bárust reyndar fljótt ábendingar um að þú værir umráðamaður dýra á nýjan leik
Annað hvort tekst illum tungum að gabba þig eða þú beitir af ásetningi hræðsluáróðri til þess eins að gera tilraun til að fá mig til að óttast þig. Ég óttast þig ekki!
Fyrir liggur að mitt fyrsta dýr sem ég eignaðist eftir vörsusviptingarnar kom í mínar hendur röskum tveimur mánuðum eftir að þú beittir mig mesta ofbeldi og valdníðslu sem ég tel að þekkist í íslenskri dýraverndarsögu að frátöldu máli Guðmundu Tyrfingsdóttur, sem MAST drap allt búfé hjá og neyddist til að biðjast afsökunar á síðar enda úrskurðað ólögmætt af ráðuneytinu. Árás þinni á mig mun ekki gleyma það sem eftir lifir ævi munnir. Hraðar nýjar ábendingar um ábendingar, líklega nafnlausar nú sem fyrr og því skot út í loftið, eiga við engin rök að styðjast og eru uppspuni eins og flest annað af þinni hálfu.
3.3 á meðan aðbúnaður þeirra, umhirða og meðferð þín á dýrunum brýtur ekki á þeim samkvæmt ákvæðum laga og velferðarreglugerða
Það er stórundarleg yfirlýsing því hvernig getur stofnunin vitað að aðbúnaður fiska minna og hvolps brjóti gegn þessu regluverki. Er stofnunin að bíða eftir ábendingum um að vegið sé að gullfiskum mínum og öðru hitabeltisfiskum og hvolpi hvar sem ég kann að vera staðsettur? - Og taka mark á slíku.
3.4 Stofnunin sér hins vegar ástæður til að fá að fylgjast vel með dýrahaldi þínu
Dulinn hræðsluáróður þinn er algerlega bitlaus. Ég get hins vegar róað einlægan dýravelferðarmetnað þinn með því að eftir að mér barst svar þitt ákvað ég að ráðstafa öllum mínum dýrum til 1. jan. 2027 eða á meðan Matvælastofnun fer með eftir með velferð dýra. Það er komið nóg af áreiti þínu í minn garð og miska. Röskun á friðhelgi heimilis míns sem verður að taka enda.
3.5 Vona að þú sýnir samstarfsvilja hvað það varðar, svo ekki þurfi að leita til meira íþyngjandi úrræða
Aftur ertu með dulinn fjandskaplegan bitlausan hræðsluáróður. Þú skorar á mig, með yfirlæti og hroka, sem einkennt hefur starfshætti þína, sem yfirdýralæknir, að virða eftirlitsskyldur Matvælastofnunar. Því er til að svara að ég virði allar eftirlitsskyldur íslenskra framkvæmdavaldshafa og sem önnur íslensk löggjöf kveður á um, því er slík áskorun óþarfi Þóra Jóhanna. Það er rík tilhneiging hjá mér að virða lög og rétt. Því er rétt að kasta þessari áskorun til baka til föðurhúsanna. Sem reyndur lögfræðingur geri ég mér grein fyrir tilgangi og markmiðum eftirlits opinberra aðila.
Ég brúka hins vegar óhikað þau réttindi mín að krefjast úrskurðar æðri ríkisvaldshafa, þyki mér á hagsmunum troðið, ...... það gildir líka um Matvælastofnun enda hefur þú sýnt og Ríkisendurskoðandi staðfest að að ríkt tilefni er oft til.
Af þessu tilefni endurtek ég algert vantraust mitt á Matvælastofnun þ.m.t ert þú. Það vantraust mitt kom fram í andmælum mínum í máli Margrétar Víkingsdóttur. Á þinni vakt leyfðir þú að vegið yrði að henni, hreyfihamlaðri konu með þýskan fjárhund, sem var henni allt, að hótað var aflífun hans vegna líkamlegrar hrörnunar hans. Ég tók það mál pro bonó af samúð. Ég leyfi ég mér að endurtaka vantraust hennar sjálfrar og Sigríðar Ingu Sigurjónsdóttur dýralækni og fyrrverandi héraðsdýralæknis á Vestfjörðum. Vegna þessa vantraust má vísa í skýrslu Ríkisendurskoðanda bls. 8
,,Stofnunin þarf að róa að því öllum árum að byggja upp traust, en það er grundvöllur þess að hún geti leyst verkefni sín farsællega af hendi. MAST ætti jafnframt að taka gagnrýni á störf sín af meiri auðmýkt og fagna því að fylgst sé með málaflokknum úr ýmsum áttum og hversu margir láta sig málefni dýravelferðar varða".
Svo virðist semsagt að þetta vantraust okkar nái langt úr fyrir hagsmuni mína og að því er virðist til tuga annara dýraeigenda og hagsmunaaðila í dýrahaldi, auk þingmanna og Ríkisendurskoðanda.
- Ég hef skilning á því að dýr eru þér mikils virði. Mig langar því til að hvetja þig til að leggja þig fram við að huga vel að aðbúnaði, umhirðu og meðferð á dýrunum þínum, þannig að ekki þurfi að koma til frekari afskipta stofnunarinnar af dýrahaldi þínu.
4.1 skilning á því að dýr eru þér mikils virði
Ég hef ekki beðið um skilning þinn á mikilvægi dýrahalds fyrir mig Þóra. Fyrir mér blasir að þú hafir engan skilning á neinu sem tengist dýrahaldi fólks. Háttalag þitt í tengslum við meint störf þín í velferð dýra er meirihluta þjóðarinnar óskiljanlegt. Það blasir við á samfélagsmiðlum út um allt!
4.2 hvetja þig til að leggja þig fram við að huga vel að aðbúnaði, umhirðu og meðferð á dýrunum þínum, þannig að ekki þurfi að koma til frekari afskipta stofnunarinnar af dýrahaldi þínu
Ég þarf ekki hvatningu þína Þóra í þessum efnum. Ég er með gríðarlega reynslu í vönduðu dýrhaldi með einstökum árangri í þágu velferðar dýra, miklu meiri en þú. Miklu fremur er það svo að ríkt tilefni sé fyrir æðri stjórnvöld að hafa almennt auga með þínum störfum en að eftirlitsaðilar þurfi að hafa áhyggjur af mér og mínum dýrum.
Þegar öllu er á botninn hvolft þá er það ekki ég, með hreint sakarvottorð, sem þarf að hafa áhyggjur heldur þú, sem nú sætir rannsókn lögreglu og áður er getið. - Það er ekki skv. ábendingum úti í bæ heldur grjóthörðum staðreyndum. Gangi þér vel að halda uppi vörnum í þeim efnum !!! - Tilraunir þínar til að hræða mig í skjóli framkvæmdavalds með ósannsögli, valdníðslu og ofbeldi munu ekki og hafa aldrei haft áhrif á sannfæringu mína að þú vaðir villu vegar sem yfirdýralæknir.
Getu og ábyrgðarleysi þitt er mikið og ógnvekjandi. Þú spurðir EKKERT um þarfir dýra minn þegar þú gafst fyrirmæli um að vörslusvipta mig.Það eitt segir mikið um þig og bendir sterklega til þess að þú uppfyllir ekki áðurnefnt skilyrði 10. gr. laga um velferð dýra eða 9. gr. laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
Ég tel að ráðherra hafi af skiljanlegum og rökréttum ástæðum hlustað á gagnrýnisraddir samfélagsins um vanhæfni Matvælastofnunar. Ég tel að að háttalag þitt, sem m.a. hefur komið rökstutt fram í þessu svari mínu og brestir í stjórnarháttum forstjóra MAST vegi þar þungt.
Ruddaskapur þinn sem yfirdýralæknir hefur sundrað fjölskyldum skjólstæðinga minna og eyðilagt síðasta vetur minn, vor og sumar. Þú hefur aukið vanlíðan sjúklinga sem þú hefur vegið að við vörslusviptingar, þú skilur ábyrga ,,viðskiptavini" MAST eftir í sárum vitandi ei um afdrif dýra þeirra. Og það sem verst er, af málflutningi þínum að dæma, þér virðist nákvæmlega sama um líðan annara.
Þú hefur kallað yfir þig slíkar óvinsældir, sem mér er vel kunnug um og lesa má um í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum, gríðarlegar óvinsældir í íslensku samfélagi, það er söngur þjóðarinnar um þessa mundir. Ég myndi ekki undrast að þér liði verulega illa vegna þessa.
Gangi þér vel að takast á við þann ófögnuð.
Að öllu þessu sögðu er rétt að upplýsa þig um og endurtaka eftirfarandi.Ég tók þá ákvörðun eftir þann hótunarfulla tölvupóst sem ég er nú að ljúka við svara að losa mig við öll þau dýr sem eftir lífðu á Ölduslóð 38 í Hafnarfirði daginn sem þú svarar mér með fyrirvara um það sem áður sagði. Það hlýtur að vera mikill léttir fyrir þig þegar þú slakar á í sumarleyfi þínu.
Það geri ég af einungis af einni ástæðu. Að forða þeim frá ofbeldi þínu. Ég mun halda mig við það sem eftir lifir árs með einni neðangreindri undantekningu.
Falli mál dómsmál mín mér í hag, kæra til Landsréttar og innsetningarbeiðni mun ég taka fagnandi á móti Atla, Agnesi, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter og restinni af bræðrum Atla og Agnesar, sonum Maríu og Hunter og njóta við það aðstoðar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og lögreglu ef svo ber undir. Ábyrgð þín er því mikil þangað til niðurstöður í dómsmálum liggja fyrir, hafðu það hugfast!
Ég undrast raunar eitt: að þú skulir nenna að sitja undir því sem þér er borið á brýn. Hvernig getur þú notið ánægju af starfi þínu. En það er annað mál. Vegir Guðs eru órannsakanlegir.
Virðingarfyllst,
Hafnarfirði 4. ágúst 2026
Árni Stefán Árnason,
dýraverndarlögfræðingur
Afrit send
Forseta Íslands
Atvinnuvegaráðherra
Ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins
Matvælastofnun
Umboðsmanni Alþingis
Ríkisendurskoðanda
Nefndarmönnum Stjórnskipunar og eftirlitsnefnda Alþingis
Ingu Sæland ráðherra
Heimildir
https://www.youtube.com/shorts/XSbxXVWPNxs
https://www.youtube.com/watch?v=7vJ0n4aauSs
https://www.youtube.com/watch?v=HAvhukB_L78
https://www.youtube.com/watch?v=25wccLEZVPo
https://www.youtube.com/watch?v=Y1n7SoYVW1w
https://www.youtube.com/watch?v=q9UlJfUrgHM
https://www.youtube.com/watch?v=bHsi-4BJnic
Ennþá fleiri myndbönd um dýrahald mitt má finna á eftirfarandi youtube slóðum
https://www.youtube.com/@arnistefanarnason9478
https://www.youtube.com/@flightsimiceland
Facebook síða mín hvar sjá má barráttu mín sl. þrjá mánuði vegna vörslusviptar Mast
https://www.facebook.com/profile.php?id=100090080053142
Greinar
Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi Mast.
https://www.nutiminn.is/featured/homlulaus-valdnidsla-og-ofbeldi-matvaelastofnunar/
Er MAST á pari við Bakkakots/Kumbaravogs ofbeldið?
https://www.dyravernd.com/greinar/mast-a-pari-vidj-bakkakots-kumbaravogs-ofbeldidj
Meistararitgerð í lögfræði - Hin leynda þjáning búfjár á Íslandi - um réttaráhrif og framkvæmd dýraverndarlaga á Íslandi frá upphafi
https://skemman.is/handle/1946/9458
Viðhengi
Kvörtun til forstjóra MAST vegna framkomu eftirlitsdýralækna við fyrstu vörslusviptingu
Kæra til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vegna ofbeldis við fatlaðan einstakling við vörslusviptingu hunds 13. feb. sl.
Afrit stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar MAST um tryggingafé
Ljósmyndir af hundum mínum
Add comment
Comments