Stjórnarráð Íslands

Atvinnuvegaráðuneytið

Skúlagötu 4 101 Reykjavík 




Efni: Andmælabréf Matvælastofnun gegn X fh dóttur sinnar.

 

Umbjóðandi minn, skv. umboði,  xxxxxr, hefur falið mér að rita þetta andmælabréf vegna málsins X, sem nú er til úrskurðar hjá ráðuneytinu,   vegna bréfs Matvælastofnunar dagsett 6. júní sl. undirritað af Einari Erni Thorlacius (hér eftir nefndur Einar) stílað á Stefán Þ. Hermansson laganema og er að finna í viðhengi

 

Yfirlýsing: Í ljósi þess að Matvælastofnun (hér eftir Mast) nýtur, skv. skýrslu Ríkisendurskoðanda til Alþingis 2023 nánast ekki neins trausts almennings, þá vill skjólstæðingur minn og raunar ég sem lögfræðingur hennar og viðskiptavinur stofnunarinnar í öðru vörslusviptingarmáli leggja ríka áherslu á vantraust okkar beggja í garð starfsmanna stofnunarinnar, sem koma að dýravelferð. Upplifun okkar er sú að vantraust það sem kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðanda eigi sannarlega við rök að styðjast og endurspeglast það í þessum mikilvægu andmælum. 



A N D M Æ L I

 

Vísað er í bréf framangrein bréf Mast. Allar feitletranir  eru andmæli og eða innlegg skjólstæðings míns. Allar skráletranir eru annaðhvort tilvísanir og rökstuðningur við réttarheimildir eða tilvísun í texta umrædds bréfs. Undirstrikanir í texta lagaákvæði eru áherslur okkar.

 

Í upphafi þessara andmæla skal vísað í rökstuðning fyrir vörslusviptingu 8. mgr. 3. bls. áðurgreinds pósts.

 

  1. 1. mgr. 38. gr. Úrbætur þola ekki bið.

Telji Matvælastofnun að úrbætur þoli enga bið getur stofnunin tekið dýr úr vörslu umráðamanns eða aflífað dýr sem hafa orðið fyrir varanlegum skaða sökum vanfóðrunar, harðýðgi, slysa eða slæms aðbúnaðar. Framangreindar aðgerðir skulu gerðar í samráði við eða samkvæmt fyrirmælum lögreglu. Matvælastofnun er ekki skylt að veita andmælarétt samkvæmt stjórnsýslulögum þegar úrbætur þola enga bið.

 

Skilyrði vörslusviptingar eru ekki uppfyllt skv. þessu ákvæði og er það í takt við alræmda beitingu lagaákvæði  úr lögum um velferð dýr og stjórnsýslulögum af Einari. Ekki var sýnt fram á né hefur verið sýnt fram á  að hundurinn hafi orðið fyrir varanlegum skaða. Matvælastofnun getur heldur ekki framvísað vottorði undirrituðu af dýralækni 13. feb. sl. sem staðfestir slíkt. Notkun ákvæðisins er því markleysa og ber þegar af þeirr ástæðu að fella vörslusviptinguna niður eins og lög um velferð dýra heimila og skila hundinum til réttmæts eiganda.

 

  1. 37. gr. Vörslusvipting dýra og haldlagning.

Matvælastofnun er heimilt að taka ákvörðun um að svipta umráðamann dýra vörslu þeirra, ef aðilar sinna ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests, og sér Matvælastofnun um framkvæmd vörslusviptingar en er jafnframt heimilt að leita aðstoðar lögreglu. Við vörslusviptingu skal Matvælastofnun ákveða hvort dýrin skuli flutt burt eða þeim haldið þar sem þau eru. Matvælastofnun er heimilt að láta aflífa dýr sem stofnunin hefur umráð yfir vegna vörslusviptingar að liðnum tveimur sólarhringum takist hvorki stofnuninni né eiganda að finna viðeigandi aðstæður eða aðbúnað fyrir dýr. Matvælastofnun telst vera umráðamaður dýra á meðan vörslusvipting stendur yfir og er skylt að annast um þau og sjá um brottflutning á dýrum sem tekin hafa verið úr vörslu umráðamanns, auk þess sem hún ber ábyrgð á fóðrun, umhirðu og aðbúnaði dýranna, allt á kostnað umráðamanns. Matvælastofnun tekur ákvörðun um hvort aflétta skuli vörslusviptingu dýra eða ráðstafa þeim með öðrum hætti að virtum andmælarétti aðila máls þar sem honum skal gefinn kostur á að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin uns dómur fellur, sbr. 41. gr. Matvælastofnun skal ráðstafa dýrunum og getur látið bjóða dýr upp, selt þau til lífs eða slátrunar eða látið aflífa þau sé ekki unnt að ráðstafa þeim á annan hátt. 

 

Hafi þær aðstæður, sem ranglega er haldið fram, að verið hafi fyrir hendi við sviptingu en jafnframt ósannað, þá var þessu ákvæði ekki fylgt. Ekki var haft samband við eiganda, sem Mast bar skylda til skv. 37. gr. laga um velferð dýra og nærtækast hefði verið til þess að koma hundinum í viðeigandi aðstæður, hafi aðstæður á heimili LSH ei verið með þeim hætti sem lög kveða á um en ekki hefur verið sannað.

Af því leiðir að brotið hefur verið á rétti eiganda. Eiganda var ekki gefin kostur á að setja viðhlítandi tryggingu uns dómur fellur, honum var aldrei boðið slíkt né leiðbeint um, en hundinum ráðstafað, ólögmætt, fjórum dögum eftir vörslusviptingu. Réttur eiganda skv. ákvæðinu var því sniðgenginn en útilokað var fyrir eiganda að taka ákvörðun um að höfða dómsmál innan svo skamms tíma. Af því leiðir að réttur eiganda til að bregðast við var sniðgenginn á allan hátt af Matvælastofnun, sem virðist fremur regla en undantekning í vörslusviptingarmálum þeim sem undirritaður lögfræðingur hefur komið nálægt á síðustu misserum og falið hefur í sér gríðarlegan miska fyrir viðskiptavini Mast.

 

  1. 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Ísland

Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. 

 

Ákvæðið á við og þarfnast tenging þess við málið ekki skýringa. Mast var ekki heimilt skv. ákvæðinu að ráðstafa eign eiganda.

 

  1. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að fá mál þetta endurupptekið, þar sem skilyrði 1. og 2. tl. 1. mgr. 24. stjórnsýslulaga eru uppfyllt, hafnar Matvælastofnun slíku með tómlæti, með því að svara ei slíkri ósk.

 

  1. Rétt er að upplýsa ráðuneytið um að yfirdýralæknir ásamt undirmönnum hans, sem komu að umræddri vörslusviptingu auk lögreglu, hafa verið kærð til lögreglu fyrir meint ofbeldi á fötluðum einstaklingi, sem er LSH. 

 

  1. Fyrir liggur í þessu máli að Matvælastofnun skeytir engu um að gæta meðalhófs í þessu máli og leggja mat á hvort vegi þyngra andleg fötlun einstaklings sem orðið hefur fyrir miklum skaða vegna þessa eða heilbrigði hunds sem aldrei hefur verið sýnt fram á að vegið hafi verið að en talsverðar líkur eru á að hafi nú verið skemmdur, andlega og líkamlega en er geta hæfni og ábyrgð Mast. sbr. 10. gr. um velferð dýra dregin stórlega í efa af þeim sem þetta ritar og skjólstæðingi hans. 

 

- Efnisleg gagnrýni og andmæli á umrætt bréf -

 

Á árunum 2024 og 2025 bárust MAST fjölmargar ábendingar um slæma meðferð dóttur kæranda, (hér eftir nefnd LSH) á hundi sínum. Fylgja nokkrar þeirra þessari umsögn. Þær eiga það allar sameiginlegt að lýsa yfir miklum áhyggjum af velferð hundsins í höndum LSH (til glöggvunar skal upplýst að LSH mun vera transkona. Þetta er tekið fram vegna þess að í einni ábendingunni er talað um dreng með karlmannsnafni) 

 

Umræddar ábendingar eru langflestar nafnlausar. Traust til Matvælastofnunar mælist lítið sem ekkert skv. skýrslu Ríkisendurskoðanda 2023 og því gætu umræddar ábendingar verið hreinn uppspuni og líklegt er að svo sé enda hefur lögfræðingur Mast ótal sinnum orðið uppvís að slíku.

 

það stæðist ekki stærðarkröfur 

 

Hundurinn gat staðið uppréttur í búrinu, snúið sér og legið. Búrið var keypt í fagverslun og við kaupin var undirstrikað af kaupanda/eiganda að búrið væri til notkunar fyrir fullvaxinn þýskan fjárhund. Því er þessi fullyrðing markleysa.

 

Sömuleiðis var rætt við LSH um þrifnað á heimilinu, 

 

Hreinlæti er huglægt mat. Eigandi, móðir LSH telur að heimilinu hafi ætíð verið sinnt vel í þrifnaði enda hefði hann ekki falið dóttur sinni umsjá hundsins ef heimili hennar væri heilsuspillandi fyrir hundinn. Engin merki voru um að hundurinn hefði orðið fyrir skaða vegna skorts á hreinlæti. Því er þessi fullyrðing markleysa. Að leggja til grundvallar í þessum efnum, mat yfirgengilegs og snælduvitalauss dýralæknis, svo notuð séu lýsingarorð Einars sjálfs, um viðskiptavini Mast, hið fyrra um annan viðskiptavin en hið síðara um eiganda hundsins eru starfshættir starfsmanns opinberrar stofnunar sem vart geta talist boðlegir og á reyndar við um allt eftirlitsdýralæknateymið í suðvestur, suður og vesturumdæmi, sem að jafnaði gengur fram með látum og leiðindum skv. vitnum í eftirlitsleiðöngrum sínum. Málefnaleg aðkoma eftirlitsteyma þekkst ekki skv. vitnum

 

Þetta var boðað eftirlit svo væntanlega var búið að taka til áður en eftirlitsfólk bar að garð.

 

Já það var búið að taka til. Hreinlæti er huglægt mat og smekksatriði sem er eitthvað sem dýralæknar læra ekki í dýralæknanámi. Því er ákúrum sem þessum vísað á bug. Líklegt er að eigandi hundsins hafi mun meiri reynslu í almennu hreinlæti sem starfsmaður á velferðarsviði Reykjavíkurborgar í þjónustuíbúðum og því að öllum líkindum mun hæfari en óbreyttir dýralæknar til að leggja mat á hvar telst ásættanlegt hreinlæti. Eigandinn var daglegur gestur í umræddum vistarverum og sá til þess að ræstingar voru í lagi.

 

xxxx hringir í eftirlitsaðila til að ræða ábendinguna. Hún segir að Lilith eigi enga vini og faðir hennar sé látinn þannig ákveðið var að fá hund til hafa félagsskap. xxxx er skráður eigandi hundsins. 

 

Hvað í ósköpunum réði því að hundurinn var ekki færður í hendur skráðs eiganda heldur vörslusviptur honum. Þetta háttalag Einars stenst enga skoðun.

 

xxxx segir að hún myndi aldrei leyfa dóttir sinni að fá hund ef að henni grunaði að dóttur sín myndi fara illa með hann. LSH er mjög hrædd um hundinn og er í reglulegum samskiptum við Dýralæknastofu Dagfinns. LSH skráði sig á námskeið hjá Hundaakademíunni. 

xxxx er mikið með þeim og hefur aldrei tekið eftir neinu nema væntumþykju milli þeirra, segir hundinn mjög hrifinn af LSH er mjög hrædd við að Matvælastofnun komi með lögreglu og taki hundinn vegna þess að hún var svipt sjálfræði af lögreglu. Hulda ætlar að reyna tala dóttur sína til með að heimila eftirlit. Hulda ætlar einnig að hafa samband við geðlækni Lilith uppá hvað hans mat er á Lilith sem hundaeiganda. Hulda ætlar svo að hafa samband við eftirlitsaðila 

 

Þetta er eiginlega það eina sem er satt og rétt í annars mjög ómálefnalegu bréfi sem þakið eru uppspuna og rangmælum. Mikilvægt er að geta þess hér að LSH hringdi hágrátandi í örvæntingarkasti, gríðarlegri geðshræringu,  til Mast eftir sviptinguna með leiðbeiningar um hverju hundurinn væri vanur í mat og annari umgengni. Einar hló að henni, andlega fötluðum einstaklingi, og er það í samræmi við önnur vinnubrögð Einars í þessu tiltekna máli og öðrum vörslusviptingarmálum. Einar verður sér endurtekið til háborinnar skammar og virðist með öllu vanhæfur í þessu starfi og algerlega skeytingarlaus á mannlegar tilfinningar á jafn viðkvæmum tímapunktum og þegar hann gefur grænt ljós, að lögum að hans mati, að hrifsa fjölskyldumeðlimi/hunda af heimilum fólks. Splundra fjölskyldum. 

 

Fram kemur hér að ofan að LSH hafi verið svipt sjálfræði. 

 

LSH var svipt sjálfræði í eitt ár löngu áður en atburðir gerðust. Sjálfræðisviptingin var liður í lyfjameðferð LSH vegna andlegrar fötlunar. Hér er Einar enn á ný að reyna, af ásetningi, að klekkja á andlega fötluðum einstaklingi.

 

Því er rétt að benda á 3.mgr.10.gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra (hér eftir nefnd dýravelferðarlög). Þar segir að óheimilt sé að fela ólögráða einstaklingum einum ábyrgð á dýrum. 

 

Hér er þessu ákvæði beitt með ósvífnum hætti gegn fötluðum einstaklingi sem löngu var búinn að fá lögræði aftur. 

 

Henni var síðan send skýrsla um eftirlitið (nr. 1420) dags. 21.ágúst. 

 

Það hlýtur að sæta verulegri undrun að LSH, andlega fötluðum einstaklingi, skuli send eftirlitsskýrsla, sem að öllum líkindum er ófær um að skilja efni hennar, en ekki tryggt að hún berist í hendur móður hennar svo hægt sé að bregðast við innihaldinu af viti. Þetta er vítavert gáleysi og virðist allt gert af hálfu Matvælastofnunar til að veikja málstað þeirra mæðgna.

 

Fram kemur í skýrslunni að LSH hafi verið viðstödd eftirlitið. 

 

Það sætir undrun að Matvælastofnun hafi ekki tryggt varnarhagsmuni LSH, sem er andlega fötluð, svo það sé endurtekið einu sinni en.  Þetta háttalag leiddi til þess sem áður er getið að yfirdýralæknir, undirmenn hans og lögregla hafa nú verið kærð fyrir meint andlegt ofbeldi og fl. meint brot á ákvæðum almennra hegningarlaga í þessu máli sem sætir nú rannsókn hjá rannsóknarlögreglu

 

Mikið er um lausamuni, dót og óhreinindi á heimilinu sem getur verið slysahætta fyrir hundinn.

Því er mótmælt að meint óhreinindi, sem engar sönnur hafa verið færðar á, geti verið slysahætta fyrir hund. Lausamunir voru undir einu borði að öðru leyti sínar ljósmyndir ekkert óvenjulegt sem þekkist ekki á öðru hvoru hundaheimili. 

 

MAST leggur mikla áherslu á að heimilið sé það snyrtilegt að hundur af þessari stærð hafi nægt gólfpláss til að athafna sig. 

 

Er almennur mælikvarði á snyrtimennsku það huglæga mat og hreinlætisstaðlar sem nánast nýútskrifaður umdeildur dýralæknir við eftirlitsstörf sín sökum skapgerðabresta skv. frásögn vitna, Úndína Ýr Þorgrímsdóttir setur sér og fullyrðir um án nokkura tilvísana í réttarheimildir?

 

Hundabúr sem notað er til að loka hund inni stenst ekki stærðarkröfur samkvæmt reglugerð um velferð gæludýra nr. 80/2016. Umráðamaður er að breyta svefnherbergi í hundaherbergi sem MAST telur vera jákvæða þróun. 

 

Engin tilvísun er í stærðir og því telst þetta innlegg mark því markleysa og minnt er á að búrið var keypt fyrir þessa hundategund í fagverslun. Sem fyrr stendur ekki steinn yfir steini í umfjöllun Einars.

 

Í skýrslunni var m.a. vísað í 6.gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra (skylt er að fara vel með dýr) 

 

Ætíð og án undantekningu var farið vel með hundinn. Hann naut dýralæknaþjónustu reglulega þegar LSH og móðir þóttust hafa ástæðu til þess að huga að heilsufari hans. Um það hefur dýrlæknir þeirra mæðgna vitnað og er á meðal gagna málsins.

 

Brottnám hundsins er ekki hægt að skilgreina öðruvísi en sem þjófnað enda voru vörslusviptingarskilyrð ekki uppfyllt eins og rökstutt hefur verið. Draga má stórlega í efa að andleg og líkamleg heilsa hundsins sé góð í dag enda er full ástæða til að draga hæfni eftirlitsdýralækna í efa með vísa í 10. gr. laga um velferð dýra um hæfni, getu og ábyrgð enda er það svo skv. fyrrnefndri skýrslu Ríkisendurskoðanda að EKKERT traust ríkir til MAST af hálfu landmanna skv. könnun hans. Minnt skal á að hundar eru skyni gæddar lífverur og það er að öllum líkindum ekki minna áfall fyrir þá en eigendur þegar jafn freklega og ómálefnalega er gengið til verks með ofbeldi eins og Einar hefur ranglega rökstutt að sé í lagi og líklega hvatt dýralækna til. Lögfræðingurinn er einfaldlega yfirgengilegur í starfsháttum sínum svo notuð sé lýsing hans sjálfs á viðskiptavin MAST sem þurfti að þola vörslusviptingu, algerlega í trássi við lög.

 

Fjölskyldumeðlimir höfðu samband við lögreglu þar sem þau höfðu verulegar áhyggjur af andlegri heilsu 

 

En á ný fer Einar með rangmæli og er það eftir öðru. Móðir ein hafði sambandi við lögreglu.

 

Samkvæmt fjölskyldumeðlimum glímir Lilith við mikil andleg veikindi. 

 

Greinilegt er að Matvælastofnun var fullkunnugt um andleg veikindi LSH en skeytti engu um að taka tillit til þeirra. Þvert á móti réðist stofnunin af hörku og mikilli grimmd inn friðheilagt heimili LSH, þvert á stjórnarskrárvarinn rétt hennar, beitti hana, algerlega varnarlausri, andlegu ofbeldi, í fylgd lögreglu og reif af henni það sem var henni kærast. Það er vítavert ásetningsverk af hálfu lögfræðings Masts, Einari, að gefa grænt ljós á slíkan óhugnað enda sætir hann nú kæru fyrir hlutdeild ofbeldi í þessari vörslusviptingu eins og áður hefur verið getið

 

Inni í svefnherberginu var German Sheperd hundurinn hennar Lilith inni í grindarbúri inni, vatnslaus, enginn gluggi opin og dregið var niður fyrir gluggann. Mikil óþrifnaður og óreiða var inni í svefnherbergi sem og annarsstaðar inni í íbúðinni. Föt, dót og aðrir munir á víð og dreifð um öll gólf, borð og hirslur. Sterkt óþrifnaðarlykt tók á móti lögreglu þegar hún gekk inn í íbúðina og ekki var hægt að ganga inn í eldhús íbúðarinnar sökum óreiðu. 

 

Ekkert liggur fyrir þessu til sönnunar, þetta er einhliða frásögn og því markleysa. Sterk óþrifalykt er hreint huglægt matsatriði. Lýsingin á ekki við reynslu móður í daglegri umgengni við dóttur á heimili hennar.

 

Í samtali við LSH sagði hún lögreglu að hundurinn væri læstur inni í svefnherbergi þegar hún færi út af heimilinu til þess að tryggja öryggi hundsins sökum þess að margt ógæfu fólk hafði aðgang að íbúðinni. Hún sagði verið væri að neyta fíkniefna þar innandyra. Sjáanleg ummerki þess efnis voru til staðar inni í íbúðinni. 

 

Hér er LSH sögð segja þetta en sagt hefur verið áður af móður hennar að hún segi ýmislegt sem ekki er hægt að  tryggja að sé rétt haft eftir henni, enda með skerta tjáningu, getur alls ekki varið sig svo vel sé vegna fötlunar sinnar. Rangt er og uppspuni að ógæfufólk hafi lykla að íbúðinni. Móðir hennar ein er með lykla að íbúðinni auk LSH.  Móðir kom á hverjum degi til LSH og það var ekki neitt ógæfufólk í íbúðinni. Móðir og Liðsauka voru þeir einu svo fóru inn i íbúðina. Hinsvegar gæti hún verið að tala um að það sé margt fólk á stigaganginum og það komi inn á stigaganginn en það var engin að neyta fíkniefna í íbúðinni. Hér er því um hreinan uppspuna að ræða.   

 

Sökum aðkomu inná heimilið og framburðar Lilith, eiganda hundsins fannst skýrsluritara tilefni til þess að tilkynna Matvælastofnun (MAST) um þær heimilisaðstæður sem hundurinn býr við, þar sem skýrsluritari telur þær ekki vera við hæfi. 

 

LSH var í hreingerningum á heimili sínu þegar lögregla kom. LSH var ekki heima , hafði farið í apótek þegar lögreglu bara garði. Þegar móðir kom inn á heimilið þetta kvöld tók hún hundinn úr höndun lögreglu sem afhenti hann möglunarlaust. Ekki blöskraði lögreglu meira aðkoman á heimilið þetta kvöld meira en svo að hún lét móður fá hundinn. Mögulega talaði lögreglan við einhvern í millitíðinni og sauð svo saman þessa skýrslu. Það mál er í skoðun. En þetta er alls ekki upplifun móður þetta kvöld.

  

Lögreglan talar um eiturlyf. Ekkert sýni var tekið af meintum eiturlyfjum né LSH kærð fyrir að hafa slíkt undir höndum. Þetta er því markeleysa en mjög grófar órökstuddar og rangar sakargiftir. 

 

Þá er skýrslan ekki einusinni vottuð að meintri brotamanneskju LSH. Ítrekað er LSH á erfitt með að tjá sig svo vel sé.

 

Niðurstaða: hér er um refsiverðar rangar sakargiftir að ræða skv. almennum hegningarlögum. 

 

Þann 13.febrúar fóru fulltrúar MAST á heimili LSH í lögreglufylgd. Að loknu eftirliti var henni afhent bréf með fyrirsögninni „Úrbætur á velferð hunds þola ekki bið. Vörslusvipting framkvæmd. Kæruréttur.“ Þar er óviðunandi aðbúnaði hundsins lýst. Tekið er fram að úrbætur þoli ekki bið og var því LSH svipt vörslum hundsins með heimild í 1.mgr.38.gr. dýravelferðarlaga. Þar segir: Telji Matvælastofnun að úrbætur þoli enga bið getur stofnunin tekið dýr úr vörslu umráðamanns...Framangreindar aðgerðir skulu gerðar i samráði við eða samkvæmt fyrirmælum lögreglu. Matvælastofnun er ekki skylt að veita andmælarétt samkvæmt stjórnsýslulögum þegar úrbætur þola enga bið. 

 

Þetta atriði var reifað í upphafi, ólögmætið sem síðar leiddi til kæru starfsmanna MAST rökstutt. Um það er ekkert meira að segja

 

Í kærubréfi virðist ekki dregið í efa að LSH hafi verið óhæf sem umráðamaður hundsins. 

 

En á ný eru andleg veikindi fatlaðs einstakling notuð gegn honum. Umrætt kærubréf var algert frumskref til að ýta málinu úr vör á æðra stjórnsýslustig. Svo virðist sem þetta sé gert af ásetningi og þessar óvönduðu og óviðeigandi ályktanir um orðalag kæru með öllu óviðeigandi.

 

Ástæðan fyrir því að hundurinn var í vörslum LSH á vörslusviptingardegi hafi verið sú að LSH hafi verið að gæta hundsins fyrir móður sína, eigandann, einmitt þann dag. 

 

Hið sanna er að þetta er rétt!

 

MAST telur þessar skýringar ekki trúverðugar 

 

Það er ekki hlutverk MAST að meta trúverðuleika heldur að taka stjórnsýsluákvarðanir að lokinni rannsókn mála skv. rannsóknarreglu stjórnsýslulaga byggt á staðreyndum en ekki getgátum og beita í kjölfarið meðalhófi til að ná fram lögmætu markmiði. Óljóst er hins vegar, með öllu, hvert hið lögmæta markið getur hafa verið. Matvælastofnun hefur ekki tekist að sýna fram á að hundurinn hafi orðið fyrir varanlegum skaða eins og 1. mgr. 38. gr. gerir kröfu um og neitar að leggja fram læknisvottorð þess efnis, enda líklega ekki til.

 

Það verður að teljast mjög hæpið að hundurinn hafi „fyrir tilviljun“ verið í umráðum LSH 13.febrúar. 

 

Hundurinn var ekki fyrir tilviljun hjá LSH heldur í skipulagðri heimsókn sem félagsskapur þar sem LSH hafði lýst því yfir að henni liði illa þennan dag. Eitt af hlutverkum hundsins var að leiðrétta slíka stöðu eins og margoft hefur komið fram. Fyrir liggur vottorð læknis um mikilvægi þess. Það er ekki hlutverk MAST að meta trúverðuleika heldur að taka stjórnsýsluákvarðanir að lokinni rannsókn mála byggt á lögum um velferð dýra. Það er hlutverk dómstóla að meta trúverðugleika ekki umdeilds lögfræðings, Einars Th.

 

Í öðru lagi liggur fyrir að vörslusviptingin byggðist á 1.mgr. 38.gr. laga nr 55/2013. Þar kemur hvergi fram að MAST geti tekið dýr úr vörslu eiganda. Þar segir þvert á móti að MAST geti tekið dýr úr vörslu umráðamanns og skiptir engu þótt eigandinn sé annar. Hundurinn var reyndar skráður á ræktandann skv. www.dyraaudkenni.is þegar vörslusvipt var en ekki á kæranda. LSH upplýsti ekki að eigandinn væri annar en hún sjálf. 

 

Þetta eru forkastanlegir útúsnúningar opinbers starfsmanns sem skilgreinir sig sem lögfræðing dýravelferðar hjá Mast. Frá upphafi þessa máls hefur legið fyrir að skjólstæðingur minn er réttmætur eigandi hundsins að lögum og er eignaréttur hans varinn af eignarréttarákvæði stjórnarskrár lýðveldisins. - Því ber að afhenda hundinn!

 

Í kærubréfi er því haldið fram að þótt MAST hafi verið kunnugt um að kærandi átti hundinn en ekki LSH hafi eigandanum ekki verið tilkynnt um vörslusviptinguna. Í málinu liggur fyrir tölvupóstur kæranda dags. 20.febrúar þar sem hún gagnrýnir ýmislegt í vörslusviptingunni. Í þessum pósti minnist hún ekki á að hún sé eigandi hundsins. Það er ekki fyrr en í tölvupósti 23.febrúar að hún segir eftirfarandi: „Fyrirgefðu en þið tókuð hundinn minn. Ég vil fá hann aftur.“ Þá var búið að ráðstafa hundinum til nýs eiganda þannig að þetta var of seint fram komið. 

 

Það er ekki boðlega stjórnsýsla af hálfu Einars að ráðstafa eignarréttarvörðu lausafé án þess svo mikið að leiðbeina ólöglærðum viðskiptavin Mast um rétt hennar til að leggja fram tryggingarfé á meðan málið er ennþá í meðferð á lægra stjórnsýslustigi. Þetta er í takt við öll önnur vinnubrögð Einars í langflestum vörslusviptingarmálum og löstur á starfsemi Mast.

 

Vegna svívirðilegs, ómálefnalegs svars lögfræðings Mast sem þakið er uppspuna, rangmælum, ósannindum og skorts á umbeðnum sönnunargögnum, nú sem fyrr, sér skjólstæðingur minn sig knúinn til að upplýsa umboðsmann Alþingis um þessa starfhætti þar sem vart er hægt að greina vandaða stjórnsýslu né það meðalhóf sem stjórnsýsluréttur er skýr um.



Fh X,

 

Hafnarfirði 3. sept. 2023



Árni Stefán Árnason

dýraverndarlögfræðingur

 

Afrit sent umboðsmanni Alþingis

Fylgiskjal bréf MAST 6. júní undirritað af Einar Erni Thorlacius