Kvörtun vegna starfa yfirdýralæknis
Sæl Þóra
Eins og þér er kunnugt um þá ákvað MAST að vörslusvipta mig öllum dýrum sem var framkvæmt 28. apríl sl. og varð mér gífurlegt áfall.
Sviptingin var framkvæmd vegna slæms aðbúnaðar á heimili mín Ölduslóð 38, þó ég hefði tilkynnt eftirlitsdýralæknum að ég byggi í dánarbúi móður minnar heitinnar Maríu Albertsdóttur.
Ölduslóð 38 hefur nú verið tekin í gegn af verktökum og verður vottað af HES innan skamms. Ég á líka annað heimili í Kjós, Eyrar 10 hvar ég dvel mikið og myndbönd sýna að hundum mínum leið vel.
Hvað þarf ég að gera meira til að endurheimta amk Atla, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter, Agnesi? Ég veitti þeim allt það sem þau þráðu, sem var hreyfing, matur, vatn og ást og kærleikur, nýtt heimili og bifreið til að tryggja að þau kæmust í Seldal alla daga. Ég fjárfesti fyrir 50. millj. til að tryggja að framangreindum hundum liði sem best og Sigríður Inga Sigurjónsdóttir getur vottað heilsufar þeirra allra við sviptingu og mig sem hundeiganda til 40 ára með hreint sakarvottorð.
Ég vil ekki fara í hart, en það eru margar leiðir færar í þeim efnum og ég mun nýta mér þær þó ég þurfi að eyða miklu miklu miklu meiri tíma í það en að reyna að ná sáttum við við þig.
Ég er með þrjá ketti hérna heima og ég keypti mér 10 vikna schaffer tík til að fylla upp í skarðið á hundlausu heimili. Ég er líka komin en 5 ný fiskabúr, með gullfiskum, gúppy fiskum og síklíðum þó allar gullfiskarnir mínir, sem ekkert amaði að hafi verið teknir af mér 28. apríl sl.
Ég vona að þú finnir flöt á að finna mínu máli farveg og þessum djöfulgangi sem kemur mest niður á mínum dýrum og þú hefur í umráðum þínum megi linna. - Þú veist að ég er grjótharður framsækinn dýraverndarsinni sem dettur ekki í hug að fara illa með dýr. Dýr eru mér barnlausum einhleypum manninum allt !!!
Sæll Árni Stefán
Til hamingju með að Ölduslóð hefur verið tekin í gegn, það hlýtur að vera léttir. Hins vegar er það svo samkvæmt gögnum að vörslusvipting á dýrum þínum byggði ekki eingöngu á slæmum aðbúnaði sem þú vísar til sé að komast í betra horf, heldur einnig vanhirðu og illrar meðferðar á dýrum. Stofnunin hefur fengið heilsufarsvottorð bæði frá nefndum dýralækni og fleiri dýralæknum á nokkur dýranna sem staðfesta vanhirðu. Jafnframt fleiri ábendingar, myndbönd og vitni sem greina frá illri meðferð. Framangreint hefur allt áður komið fram í svörum til þín vegna beiðni um endurupptöku með ítarlegri tilvísan í eftirlitsskýrslur.
Hvað varðar endurheimt á dýrum þínum þá hefur því erindi einnig áður verið svarað í pósti frá sviðsstjóra eftirlits þann 25.6. Ég get endurtekið það helsta ef það hefur farið fram hjá þér. Þar sem ekki var lagt fram tryggingafé fyrir dýr þín eftir vörslusviptingu, þrátt fyrir framlengdan frest, hefur þeim nú verið varanlega ráðstafað samkvæmt skyldum Matvælastofnunar um ráðstöfun á vörslusviptum dýrum sem fram koma í 37. gr laga um velferð dýra. Með varanlegri ráðstöfun afsalar Matvælastofnun sér umráðum yfir dýrunum og getur með engum hætti hlutast til um að taka þau dýr aftur og afhenda þér, óháð hvort úrbætur hafi nú verið gerðar eða ekki. Það gildir líka hundana Atla, Liam, Scarlet, Maríu, Hunter, Agnesi.
Takk fyrir að upplýsa um dýrahald þitt, við kunnum að meta hreinskilni þína. Stofnuninni bárust reyndar fljótt ábendingar um að þú værir umráðamaður dýra á nýjan leik. Stofnunin sér ekki að svo stöddu ástæður til að hafa afskipti af því dýrahaldi á meðan aðbúnaður þeirra, umhirða og meðferð þín á dýrunum brýtur ekki á þeim samkvæmt ákvæðum laga og velferðarreglugerða. Stofnunin sér hins vegar ástæður til að fá að fylgjast vel með dýrahaldi þínu í ljósi sögunnar. Vona að þú sýnir samstarfsvilja hvað það varðar, svo ekki þurfi að leita til meira íþyngjandi úrræða. Enda hefur Matvælastofnun lögbundna skyldu og heimild til að sinna nauðsynlegu eftirliti samkvæmt lögum nr. 55/2013 um velferð dýra. Verði eftirliti ekki sinnt með samþykki aðila getur stofnunin, eftir atvikum, gripið til viðeigandi úrræða á grundvelli laganna til að tryggja framkvæmd þess.
Ég hef skilning á því að dýr eru þér mikils virði. Mig langar því til að hvetja þig til að leggja þig fram við að huga vel að aðbúnaði, umhirðu og meðferð á dýrunum þínum, þannig að ekki þurfi að koma til frekari afskipta stofnunarinnar af dýrahaldi þínu.